Skattalagabreytingar 2027
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Thu Jan 28 2027 09:00
Hagnýtt námskeið fyrir bókara og aðra sem sjá um bókhald fyrirtækja um breytingar á skattalögum fyrir árið 2027.
Farið verður yfir breytingar á skattalögum og reglugerðum sem hafa áhrif á tekjuárinu 2027. Auk þess verður tæpt á þeim breytingum sem hafa áhrif á framtalsgerð 2027 vegna tekna 2026. Ef tilefni gefst verður farið yfir þá úrskurði yfirskattanefndar og/eða dóma sem hafa leitt til breyttrar framkvæmdar á skattalögum.
Fyrst og fremst verður farið yfir breytingar sem gerðar hafa verið á lögum um tekjuskatt, virðisaukaskatt, tryggingagjald og staðgreiðslu skatta. Einnig verður farið yfir þær breytingar sem orðið hafa á skattmati vegna tekna áranna 2026 og 2027.
Þá verður farið yfir nýjar alþjóðareglur um skattamál. Ef einhverjir úrskurðir yfirskattanefndar og/eða dómar á árinu 2026 hafa leitt til þess að framkvæmd skattalaga breytist verður einnig farið yfir þá.
Námskeiðið er fyrst og fremst ætlað viðurkenndum bókurum og öðrum sem sjá um bókhald fyrirtækja.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu verður fjallað um:
- Breytingar á lögum um tekjuskatt, virðisaukaskatt, tryggingagjald og staðgreiðslu skatta.
- Breytingar á skattmati vegna tekna áranna 2026 og 2027.
- Nýjar alþjóðareglur um skattamál.
- Nýlegir úrskurðir yfirskattanefndar.