Skattland: Upphaf ríkisvalds á Íslandi

Skattland: Upphaf ríkisvalds á Íslandi

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Tue Apr 06 2027 19:30

Hvað gerðist eftir að Ísland varð hluti af ríki Noregskonungs?

Á þessu námskeiði verður fjallað um valdabaráttu, lög og stjórnmál frá lögtöku Jónsbókar árið 1281 til siðbreytingar árið 1551. Þótt konungsvaldið væri orðið hluti af íslenskum veruleika var samband Íslands og konungs hvorki einfalt né átakalaust. Íslendingar vísuðu í fyrri hefð varðandi lög, rétt og sjálfsstjórn, meðal annars í skilmálaskrám eins og Gamla sáttmála. Konungsfulltrúar áttu í flóknum samskiptum við íslenska höfðingja, alþingi og almenning og oft urðu átök um túlkun laga, framkvæmd valds og mörk konungsvaldsins. Með því að skyggnast inn í þessi átök fæst innsýn í hvernig stjórnskipan Íslands tók breytingum á löngum tíma, þegar íslenskt samfélag var að aðlagast breyttu valdajafnvægi, m.a. á Norðurlöndum, án þess að sleppa tökunum á hefðum og venjum. Sagan varðar því ekki aðeins konung og embættismenn heldur einnig íslenskt samfélag, valdajafnvægi innan þess og forn réttindi eins og Íslendingar skilgreindu þau. Á námskeiðinu verður gerð grein fyrir mikilvægustu frumheimildum um þetta tímabil og hvernig þær varpa ljósi á stjórnmálasögu þess.

Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um sögu Íslands og almenna miðaldasögu. Mælt er með að þátttakendur á námskeiðinu kynni sér bókina „Skattland. Valdstjórn á Íslandi 1281 – 1551“ (Reykjavík: Sögufélag, 2026) eftir Sverri Jakobsson.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Samfélagsbreytingar á 14., 15. og 16. öld.
  • Andstæður konungsvalds og þingvalds.
  • Afskipti konungsvalds af verslun.
  • Afskipti konungsvalds af kirkjustjórn.
  • Helstu frumheimildir um stjórnmálasögu síðmiðalda.

Ávinningur þinn:

  • Innsýn í samtímaheimildir um íslenska síðmiðaldasögu.
  • Ný sýn á átök konungsvalds og Íslendinga á síðmiðöldum.
  • Aukin vitneskja um spennandi atburði og forsendur þeirra.
  • Ný sýn á konungsvald, höfðingja og bændur á þessu tímabili.