Skjótt skipast veður í lofti! Þjóðtrúarkvöldvaka 2026
Sheep Farming Museum, Sævangur við Steingrímsfjörð, by road 68, 510 Hólmavík Directions
Sat Sep 12 2026 21:00
Mögnuð þjóðtrúarkvöldvaka, samstarfsverkefni Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Ströndum og Sauðfjárseturs á Ströndum, árviss viðburður frá 2013.
Að þessu sinni verður þemað veðrið, hafið og þjóðtrúin, og kvöldvakan hefur yfirskriftina Skjótt skipast veður í lofti!
DAGSKRÁ:
Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur:
Skjótt skipast veður í lofti: Óvættir í undirdjúpunum
Eiríkur Valdimarsson þjóðfræðingur:
Útburðarvæl og þurrkaðar skruddur: Af skrítnum og sérkennilegum veðurspám við sjávarsíðuna
Dúllurnar með tónlistaratriði
Dularfullt kvöldkaffi
Guðrún Júlíana Sigurðardóttir, þjóðfræðingur:
„Það var skítaveður, alveg skítaveður.“ Frásagnir sjómanna um óveður
Jón Jónsson, þjóðfræðingur:
“… og geymir svo lík hans í grænum þara.” Sjóslys á Ströndum á 19. öld
Þjóðfræðingar í hópi heimafólks sjá að þessu sinni um að troða upp með hæfilegri blöndu af krassandi sögum, fróðleik og fræðum. Tónlistaratriði og krassandi og kynngimagnað kvöldkaffi verður líka á boðstólum hjá Sauðfjársetrinu.
Verið öll hjartanlega velkomin á þjóðtrúarkvöldvökuna!