Skoppa og Skrítla - FJörubingó

Skoppa og Skrítla - FJörubingó

Mon Sep 21 2026 16:00

Skoppa og Skrítla ætla að bjóða upp á Fjörubingo og hvetja þær foreldra, ömmur og afa til að koma og eiga gæðastund með börnunum sínum við ævintýraleit í fjörunni. Skoppa og Skrítla afhenda Fjörubingóspjöld og fjölskyldan fær afnot af litlum poka með skóflu og fötu, kíki og stækkunargleri til aðstoðar við Fjörubingóið. Verðlaun eru veitt fyrir bingó og hægt að vinna sér inn aukaverðlaun fyrir að finna hjartasteina, reisa glæsilega sandkastala og/eða að fleyta kerlingar. Mikið lýðheilsumál sem nærir og styrkir böndin.