Skrifahelgi í Gunnarshúsi
Gunnarshús, Dyngjuvegur 8, 104 Reykjavík Directions
Sat Nov 28 2026 10:00
Velkomin á helgarnámskeið í ritlist í húsi Rithöfundasambandsins við Dyngjuveg.
Námskeiðið stendur helgina 28. - 29. nóvember 2026, í alls 10 klukkustundir, þar sem við sökkvum okkur ofan í skrif í góðum hópi og nærandi umhverfi. Við gerum ýmsar stílæfingar, nýtum okkur kveikjur og stökkpalla, fræðumst um sögusvið og persónusköpun, átök og spennu, og nærum okkur bæði á sál og líkama með samveru og skrifum, góðum mat og ýmiss konar innblæstri.
Að námskeiði loknu velja þátttakendur einn þeirra texta sem urðu til á námskeiðinu og skila til leiðbeinanda sem veitir á hann endurgjöf. Þá fá þátttakendur sömuleiðis sendar fimm kveikjur til að koma sér áfram í skrifum.
Hádegisverður báða dagana er innifalinn og framreiddur á staðnum af matreiðslumeistaranum Atla Ottesen, öðrum eiganda veitingastaðarins Hosiló
Skráning er hafin og fer fram hér: https://forms.fillout.com/t/mXTpNrt7z7us
ATH. Takmörkuð pláss í boði!
Verð: 49.500
Athugið að náist ekki lágmarksfjöldi þátttakenda verður námskeiðið fellt niður og námskeiðsgjald endurgreitt að fullu.
DAGSKRÁ:
Laugardagur
10 - 12.30 Kveikjur, upptaktur, tendrun. Við lesum saman texta og spreytum okkur á stílæfingum til þess að koma okkur á fljúgandi fart í skrifum.
12.30 - 13 Nærandi heitur hádegisverður, innifalinn í verði.
13 - 15 Fjallað um sögusvið og persónusköpun. Skrifað og unnið úr ýmsum efniviði - við sækjum innblástur í endurminningar, umhverfið, kveikjur og texta sem lagðir eru fram í smiðjunni.
Sunnudagur
10 - 12.30 Fjallað um átök og spennu. Kveikjur, innblástur og unnið að lengri texta.
12.30 - 13 Nærandi heitur hádegisverður, innifalinn í verði.
13-15 Skrif og deiling. Að viðhalda skrifagleðinni – tæki og tól til að halda flæðinu áfram!
Að námskeiði loknu fá þátttakendur póst með fimm kveikjum sem þeir geta nýtt sér í áframhaldandi skrifum og skila einu verkefni til leiðbeinanda til yfirferðar.
Umsagnir frá þátttakendum í fyrri námskeiðum:
✨„Námskeiðið var mjög gagnlegt. Fór fram úr mínum björtustu vonum.“
✨ „Ótrúlega vel skipulagt og lærdómsríkt námskeið. Kveikti verulega í skáldafræinu sem beið vökvunar.“
✨ „Ég mætti með opinn huga og ekki mikið af fyrirframgefnum hugmyndum. Fannst námskeiðið mjög gagnlegt og vekjandi. Kom mér eiginlega á óvart hvað mikið gerðist á þessum tveimur dögum.“
Spurningar? Hafðu endilega samband á sunnadis@gmail.com