✨ SKVÍSUKVÖLD – góðgerðarkvöld fyrir konur ✨
Sviðið, Sviðið, Selfoss | Sviðið Directions
Thu Sep 17 2026 20:00
SKVÍSUKVÖLD – góðgerðarkvöld fyrir konur
Vertu með okkur í skemmtilegu Skvísukvöldi á Sviðinu á Selfossi fimmtudaginn 17. september 2026.
Á kvöldinu verður tónlist og skemmtun, pop-up sölubásar og glæsilegt happdrætti. Einn happdrættismiði fylgir hverjum aðgöngumiða og hægt verður að kaupa fleiri miða á staðnum. Þannig getur þú aukið vinningslíkurnar og um leið lagt þitt af mörkum til mikilvægs málefnis.
Við komu fá gestir óáfengan móttökudrykk í boði Ölgerðarinnar og glas af freyðivíni í boði Mekka. Bar verður einnig opinn þar sem hægt verður að kaupa drykki yfir kvöldið.
Einnig verða léttar veitingar í boði.
Húsið opnar kl. 19:30 og dagskráin hefst stundvíslega kl. 20:00. Við hvetjum gesti til að mæta tímanlega.
Fram koma Guðrún Árný með singalong og
Theodora Guðna mun kitla hláturtaugarnar.
Heimaskipulag
Brá verslun
Tan.is og elite lashes
verða með pop up bása
18 ára aldurstakmark❤️
Um Sigurhæðir
Sigurhæðir eru úrræði fyrir konur á Suðurlandi sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi. Þar fá konur stuðning, ráðgjöf og öruggt rými til að vinna úr reynslu sinni og styrkja sig til framtíðar.
Á kvöldinu verður:
– Tónlist og skemmtun
– Happdrætti með glæsilegum vinningum
– Einn happdrættismiði með hverjum aðgöngumiða
– Pop-up sölubásar
– Móttökudrykkir í boði Ölgerðarinnar og Mekka
– Bar á staðnum
Forsala: 3.990 kr.
Við inngang: 4.990 kr.
Takmarkaður fjöldi miða er í boði – tryggðu þér miða tímanlega.
Að Skvísukvöldinu standa Aldís Stella, Jeesis Solys og Klaudia Anna, nemendur í viðburðastjórnun við Háskóla íslands á Hólum. Viðburðurinn er hluti af námi okkar.
Við völdum að styrkja Sigurhæðir þar sem okkur langaði að láta gott af okkur leiða í okkar nærsamfélagi og vekja um leið athygli á því mikilvæga starfi sem þar fer fram. Allur ágóði kvöldsins rennur til Sigurhæða.
Við hlökkum til að sjá ykkur á Sviðinu 17. september!
Miðasala inn á Tix.is
https://tix.is/event/22301/skvisukvold
Við viljum þakka öllum þeim fyrirtækum og aðilum sem styrktu okkur❤️