Skynjunarleikstund í Bókasafni Mosfellsbæjar
Mosfellsbær public library, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær Directions
Wed Dec 02 2026 10:00
Pláneta mætir í Bókasafn Mosfellsbæjar og býður börnum á sporbaug um veröld sína fulla af skynjunarleik!
Í leikstundinni förum við í ferðalag fullt af mismunandi hljóðum, áferðum, efnivið og skynupplifunum. Skynjunarleiksmiðjur Plánetu eru til þess fallnar að allir fái að kynnast nýjum skynjunarupplifunum á skemmtilegan og gagnvirkan máta.
Leiksmiðjurnar henta sérstaklega vel fyrir ung börn sem eru ekki byrjuð í leikskóla, ásamt foreldrum, öfum og ömmum eða öðrum umönnunaraðilum. Við leggjum áherslu á að skapa notalegt umhverfi þar sem börn geta uppgötvað heiminn í gegnum skynörvun á sínum eigin hraða.
Leikstundin fer fram í fjölnotasal safnsins, Fiskabúri.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!