Smásögur – fjarnámskeið í ritlist

Smásögur – fjarnámskeið í ritlist

Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions

Mon 05.10.2026 10:00

Smásögur er fjögurra vikna langt rafrænt ritlistarnámskeið - þú sinnir skrifunum þegar þér hentar! Leiðbeinandi er Sunna Dís Másdóttir.

Skráning er hafin og fer fram hér: https://forms.fillout.com/t/6CxtrvjLS2us

Í hverri viku fá nemendur sent fræðslumyndband og þrjár kveikjur til þess að koma sér á flug í skrifum. Í lok hverrar viku skila nemendur verkefni unnu upp úr einni af kveikjum vikunnar. Lögð er mikil áhersla á skrifagleði og leik, en nemendur fá jafnframt ítarlega og hvetjandi endurgjöf á öll skilaverkefni.

ATH. Takmörkuð pláss í boði!

5. október: Örsögur

Nemendur fá sent fræðslumyndband um hið spriklandi og skemmtilega form örsöguna, auk þriggja kveikja.

Í lok viku skila þeir texta upp úr einni kveikju til kennara. Hámark 1 bls.

12. október:

Fjallað er sögumann og sjónarhorn í smásagnaskrifum. Nemendur fá sent fræðslumyndband og þrjár kveikjur. Í lok vikunnar skila nemendur texta til kennara sem þeir hafa unnið upp úr einni af kveikjum vikunnar. Hámark 2 bls.

19. október:

Fjallað er um sviðssetningar og átök. Nemendur fá sent fræðslumyndband og þrjár kveikjur. Í lok viku skila nemendur texta til kennara. Hámark 2 bls.

26. október:

Fjallað er um byggingu smásagna. Nemendur fá sent fræðslumyndband og þrjár snarkandi ferskar kveikjur til að koma sér af stað í smásagnaskrifum. Í lok viku skila nemendur fullunninni smásögu til kennara. Hámark 3 bls.

Nánari upplýsingar hér: https://forms.gle/vRdYNhujioHh1hpw9

Um Sunnu:

Sunna Dís er með M.A.próf í ritlist frá Háskóla Íslands og er sjálfstætt starfandi sem rithöfundur, þýðandi, ritlistarleiðbeinandi og gagnrýnandi. Hún hefur staðið fyrir fjölmörgum ritlistarsmiðjum fyrir fullorðna og börn við góðar undirtektir.

Frá þátttakendum í fyrri námskeiðum og Skrifaáskorunum:

✨„Mér fannst námskeiðið alveg frábært. Það kveikti á sköpunarkraftinum í dimmasta skammdeginu.“

✨ „Virkaði á hugann eins og startvökvi á gamla díselvél.“

✨ „Mjög skemmtilegt námskeið sem losaði um margra ára ritstíflu. Fór algjörlega fram úr væntingum.“

Performers