Smásögur með Svikaskáldum
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Wed Jan 27 2027 19:00
Auktu færni þína í skapandi skrifum á þessu vandaða 8 vikna smásagnanámskeiði!
Námskeiðið Smásögur er í samstarfi við Svikaskáld, sex kvenna skáldakollektív. Saman hafa þær gefið út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Á námskeiðinu lesa nemendur og rýna saman smásögur, gera ýmsar skrifaæfingar og spreyta sig á skrifum á öllu frá örsögum og smáprósum til lengri smásagna. Á námskeiðinu verður lesið efni eftir marga fremstu smásagnahöfunda heims, íslenska og erlenda. Gert er ráð fyrir að nemendur taki virkan þátt í tímum auk þess sem þeir vinna heimaverkefni og taka þátt í rithringjum á námskeiðstímanum. Á þann hátt fæst þjálfun í að veita og taka á móti gagnlegri endurgjöf og mynda samfélag skrifandi fólks.
Námskeiðið er átta vikur að lengd. Kennsla fer fram eitt kvöld í viku, en þar fyrir utan vinna þátttakendur í textum sínum heima. Í hverri kennslustund sjá tveir kennarar um kennsluna. Veitt verður endurgjöf á hagnýta verkefnavinnu.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja eflast í skapandi skrifum smásagna.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Upphaf, kveikjur, innblástur og skrif.
- Ólík form styttri bókmenntatexta, svo sem örsögur, smáprósa og prósaljóð auk smásagna.
- Gerð smásagna, með tilliti til tækni og byggingar.
- Texta sem listform.
- Yfirlestur, endurgjöf og ritstjórn.
Ávinningur þinn:
- Þú eykur færni þína í skrifum skapandi texta.
- Þú dýpkar þekkingu þína á styttri formum prósatexta og ólíkum gerðum þeirra.
- Þú lærir að greina texta í ritstjórnarferli, að veita og vinna úr uppbyggilegri endurgjöf.
- Þú öðlast færni í að beita ólíkum vinnuaðferðum rithöfunda.
- Þú kynnist bókmenntafræðilegum hugtökum sem nýtast við skrif skapandi texta.
- Þú öðlast aukið sjálfstraust í eigin sköpun og skrifum.