Söguganga: Víkingaaldarskáli í Höfnum

Söguganga: Víkingaaldarskáli í Höfnum

Kirkjuvogskirkja, Kirkjuvogur 6, 233 Hafnir Directions

Thu 27.08.2026 20:00

Ármann Guðmundsson, fornleifafræðingur, leiðir gesti um minjasvæðið í Höfnum þar sem skáli frá 9. öld fannst og segja frá rannsókninni á honum. Skálinn var líklega reistur fyrir þann tíma sem almennt er talið að landið hafi verið numið, og virðist hann hafa verið í notkun fram á 10. öld. Gangan hefst við Kirkjuvogskirkju.

Sögugangan er á vegum Byggðasafns Reykjanesbæjar og er þátttaka ókeypis. Verið öll velkomin!

Þetta er þriðja af fjórum sögugöngum sem safnið stendur fyrir í ár. Hinar göngurnar verða 13. ágúst, 20. ágúst og 6. september.