Söngvaskáld í stofunni: Marína Ósk & Hreimur

Söngvaskáld í stofunni: Marína Ósk & Hreimur

Sun Sep 13 2026 20:00

Kæru Eyrbekkingar og nærsveitungar - Hér er tilkynning um heimboð!

Tilefni: Fyrstu tónleikar tónleikaraðarinnar “Söngvaskáld í stofunni”

Gestur kvöldsins: Hreimur Örn Heimisson

Staður: Háeyrarvellir 2, Eyrarbakki

Stund: 13. september 2026 kl. 20:00

Aðgangur: Fyrstur mætir, fyrstur fær sæti - Takmarkað sætaframboð

Miðaverð: Þú mátt bara ráða

Gott að vita: Ekki hjólastólaaðgengi, kisuheimili, viðburðurinn verður tekinn upp á hljóð og mynd

Söngkonan Marína Ósk og viðburðafyrirtækið MX PROJECTS kynna með mikilli hjartagleði “Söngvaskáld í stofunni”, stofutónleikaröð þar sem Marína Ósk býður íslenskum söngvaskáldum heim í stofu, hvar þau flytja tónlist hvors annars, spjalla við áhorfendur og segja sögur.

Á þessum fyrstu tónleikum mun enginn annar en Hreimur Örn Heimisson setjast í stofuhornið með Marínu Ósk. Hreim þarf vart að kynna, enda einn ástsælasti söngvari og lagahöfundur þjóðarinnar til margra ára. Hann hefur gert garðinn frægan með hljómsveitum á borð við Land og syni og Made in Sveitin, ásamt því að minna okkur öll á hvað Lífið er yndislegt.

Búast má við huggulegri og heimilislegri tónleikaupplifun, kitluðum hláturvöðvum, tónlistarlegri næringu og léttum veitingum í boði húseigenda. Húsið opnar kl. 19:15 og tónleikar hefjast kl. 20:00.

Takmarkað verður sætaframboðið og fyrstur kemur, fyrstur fær sæti. Miðasala fer fram við hurð og velja gestir sjálfir sitt eigið miðaverð. Einnig verður hægt að fjárfesta í plötum og varningi listafólksins. Hægt verður að greiða með korti, reiðufé eða millifærslu.

Viðburðurinn er haldinn með dyggum stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Suðurlands og Tónlistarsjóði. Markmið verkefnisins er að stuðla að samheldni samfélagsins sem og fjölbreyttu tónleikahaldi utan höfuðborgarsvæðisins.

Næstu stofutónleikar verða 27. september og gestur verður Ragnheiður Gröndal.