Spænska I
Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions
Mon Feb 01 2027 17:00
Langar þig að læra grunnatriðin í spænsku?
¿Quieres aprender español?
Á þessu námskeiði verða helstu málfræðiatriði kynnt og farið yfir orðaforða sem nýtist í daglegu lífi. Lögð verður áhersla á lesskilning, ritun stuttra texta, hlustun og tjáningu.
Á námskeiðinu er unnið á tölvu í tímum og þurfa þátttakendur að hafa tölvu meðferðis. Kennsluaðferðir á námskeiðinu eru verkefnamiðaðar og markmiðið er að nemendur séu virkir þátttakendur í eigin námi. Unnin eru fjölbreytt verkefni á kennslukerfinu Moodle, sem nemendur hafa aðgang að á meðan á námskeiðinu stendur.
Námskeiðið er ætlað byrjendum í spænsku sem hafa engan grunn í tungumálinu.
Einnig er vakin athygli á framhaldsnámskeiðinu Spænska II.
Efni og ávinningur
Á námskeiðinu er fjallað um:
- Helstu málfræðiatriði spænskunnar.
- Farið yfir hagnýtan orðaforða.
- Menningu spænskumælandi landa.
Ávinningur þinn:
- Skilningur á uppbyggingu tungumálsins.
- Grunnfærni í spænsku og geta til að eiga einföld samskipti á einu af útbreiddustu tungumálum heimsins.
- Innsýn inn í hinn spænskumælandi heim.