Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum - Austurbæjarbíó

Splunkuný tegund af erótík með Jólabjöllunum - Austurbæjarbíó

Silfurtungl, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Directions

Thu Nov 19 2026 19:30

🔔 Jólabjöllurnar snúa aftur – og í þetta sinn með splunkunýja tegund af erótík!

Sönghópurinn sem hefur glatt, hneykslað og kitlað hláturtaugar landsmanna í meira en áratug býður til stórskemmtilegra jólatónleika fimmtudaginn 19. nóvember kl. 19:30 í Silfurtunglinu í Austurbæjarbíói. 🎄

🎶 Á efnisskránni verður að venju góð blanda af eldri lögum og glænýjum sem hafa fengið hina sérstæðu Jólabjöllumeðferð. Klassísk lög fá nýtt líf, textarnir fara gjarnan þangað sem aðrir þora ekki og fátt, ef nokkuð, er heilagt. 😏

🎁 Að venju verður líka æsispennandi happdrætti með glæsilegum vinningum og hægt verður að næla sér í spennandi varning á staðnum – tilvalið fyrir þau sem eiga allt.

🇮🇸 Allir textar eru á íslensku – öll velkomin. Við bendum þó á að tónleikarnir henta ekki einstaklingum undir 20 ára aldri. 🔥

Komdu og kynntu þér splunkunýja tegund af erótík með Jólabjöllunum – við lofum að jólin verða aldrei söm aftur. 🔔✨

P.S. Ef þú kemst ekki á tónleikana þennan dag verðum við líka með tónleika í Hljómahöll 29. nóvember kl. 19:30. 😉