Stígðu fram - sigraðu ræðukvíðann

Stígðu fram - sigraðu ræðukvíðann

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Wed Nov 11 2026 13:00

Á námskeiðinu er tekist á við ræðukvíða og markmiðið er að þú lærir leiðir til að láta þér líða vel að tala fyrir framan allar stærðir af hópum.

Hræðist þú að standa fyrir framan annað fólk og tala? Langar þig að líða vel við slíkar aðstæður? Á námskeiðinu er tekist á við ræðukvíða og markmiðið er að þú lærir leiðir til að láta þér líða vel að tala fyrir framan allar stærðir af hópum.

Samkvæmt rannsóknum glímir u.þ.b. þriðjungur starfsfólks íslenskra fyrirtækja við svokallaðan ræðukvíða. Ræðukvíði getur háð fólki í vinnunni og í þeirra persónulega lífi. Algengasta birtingamynd félagsfælni er að hræðast að tala fyrir framan aðra. Það getur háð einstaklingum talsvert bæði í starfi og í persónulega lífinu.

Á námskeiðinu er farið í gegnum praktískar æfingar, aðferðir kenndar í ræðutækni, framsögn og framkomu þar sem þátttakendur spreyta sig í öruggum aðstæðum. Gunnar nýtir nám sitt og nærri þrjátíu ára starfsreynslu sem leikari, útvarpsmaður, skemmtikraftur, veislustjóri og fundarstjóri til að fara á skemmtilegan hátt yfir það sem getur hjálpað fólki að hætta að hræðast og líða betur í þessum aðstæðum.

Námskeiðið er fyrir alla sem eiga erfitt með að tala fyrir framan annað fólk og vilja laga það. Hvort sem er einstaklingar eða hópar úr t.d. fyrirtækjum eða stofnunum. Ekkert aldurstakmark eða menntunar krafist, bara vilji til að líða betur í aðstæðum þar sem þau þurfa tala fyrir framan annað fólk.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Að tala fyrir framan annað fólk við ólíkar aðstæður og það sem fólk hræðist helst við það.
  • Aðferðir og ráð til þess að komast yfir þá hræðslu.
  • Tækni og aðferðir til að vera hnitmiðaðri þegar þú heldur ræðu/talar fyrir framan fólk.
  • Tækni og aðferðir til að líða betur og njóta þess að vera í þessum aðstæðum.

Ávinningur þinn:

  • Að „ræðukvíðinn“ stjórni þér ekki lengur, hvorki í vinnunni né persónulega lífinu.
  • Kunnátta í aðferðum og tækni sem nýtast þér í undirbúningi fyrir að halda ræðu / tala fyrir framan annað fólk.
  • Aukin hæfni í að tala fyrir framan annað fólk.
  • Æfingar sem þú getur unnið áfram í.

Aðrar upplýsingar

Enginn undirbúningur nauðsynlegur, en þátttakendur fá verkefni í lok fyrri tímans sem þau þurfa að vinna fyrir seinni tímann.

Performers