Stóri Láru og Ljónsa-dagurinn í Smáralind 🦁🎈

Stóri Láru og Ljónsa-dagurinn í Smáralind 🦁🎈

Smáralind, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Directions

Sat Nov 14 2026 13:00

Stóri Láru og Ljónsa dagurinn nálgast! 🎉

Við hlökkum til að sjá þig laugardaginn 14. nóvember kl. 13:00 fyrir framan Hagkaup í Smáralind!

🎶Dagskrá

Birgitta Haukdal og Ljónsi úr Þjóðleikhúsinu mæta á svæðið og skemmta börnunum. Jólaálfarnir hennar Birgittu, þær Saga Júlía og Esja, verða Ljónsa og Birgittu innan handar ásamt sérstökum leynigesti🦁

Kókómjólk, Stjörnupopp, kandífloss og gjafir í boði á meðan birgðir endast🍿🎁

Birgitta spjallar við gesti og áritar nýju Láru- og Atlabækurnar, sem verða á sérstöku kynningarverði.

📘 Lára fer á skauta

📗 Atli fer til tannlæknis

Fjölskyldudagur með Birgittu og Ljónsa sem enginn vill missa af! Veitingar og tónlist! 🍭🎶 ✨