Sunnudagaskólinn byrjar í Neskirkju
Neskirkja, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions
Sun 06.09.2026 11:00
Sunnudagaskólinn byrjar í Neskirkju sunnudaginn 6. september n.k. kl. 11. Sunnudagaskólinn einkennist að venju af gleði, söng, leikjum og góðum sögum. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Nanna H. Birgisdóttir, Kristrún Lilja Gísladóttir, Karen Ósk Helgadóttir og Karólína Björg Óskarsdóttir auk Ara Agnarssonar sem leikur undir.
Hressing og samfélag á torginu að loknu helgihaldi.