Svavar Guðnason │ Úthlutun úr styrktarsjóði og útgáfuhóf 📗

Svavar Guðnason │ Úthlutun úr styrktarsjóði og útgáfuhóf 📗

The House of Collections, Hverfisgata 15, 101 Reykjavík Directions

Wed Nov 18 2026 17:00

Svavar Guðnason │ Úthlutun úr styrktarsjóði og útgáfuhóf 🎉

Verið hjartanlega velkomin á 15. úthlutun styrkja úr Styrktarsjóði Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur, miðvikudaginn 18. nóvember kl. 17.00 í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Úthlutunin fer fram á afmælisdegi Svavars Guðnasonar.

Markmið sjóðsins er að styðja við efnilega unga myndlistarmenn og efla íslenska myndlist. Fyrst var úthlutað úr sjóðnum árið 1995 og frá upphafi hafa alls 23 listamenn hlotið styrk. Í ár bárust sjóðnum 24 umsóknir.

--

Bókahóf í tilefni af útgáfu bókarinnar Svavar Guðnason: Litróf birtunnar – um list brautryðjanda 📗

Að lokinni styrkjaúthlutun verður boðið til bókahófs í tilefni af útkomu nýrrar bókar um ævi og list Svavars Guðnasonar.

Svavar Guðnason kom eins og stormsveipur inn í íslenskt listalíf í ágúst 1945, eftir langa dvöl í Danmörku, með sýningu sinni í Listamannaskálanum. Með henni ruddi hann óhlutbundinni myndlist braut á Íslandi. Svavar hafði jafnframt mikil áhrif á danska og evrópska listasögu sem einn af listamönnunum í hópnum sem síðar varð þekktur sem Cobra-hreyfingin.

Í bókinni fjallar aðalhöfundur hennar, Anna Jóhannsdóttir, listfræðingur og myndlistarmaður, um listferil Svavars. Danski listfræðingurinn Jens Tang Kristensen fjallar jafnframt um Svavar sem „alþjóðlegan íslenskan meistara“.

Bókin er veglegur minnisvarði um einn merkasta fulltrúa íslenskrar myndlistar, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi. Henni fylgja sérprent af fimm málverkum Svavars og kemur hún út bæði á íslensku og ensku.

Við hlökkum til að taka á móti ykkur og eiga saman góða stund í tilefni af íslenskri myndlist, arfleifð Svavars Guðnasonar og stuðningi við komandi kynslóðir myndlistarmanna.