Syngdu með Sálarlögunum

Syngdu með Sálarlögunum

Ölhúsið Hafnarfirði, Flatahraun 5a, 220 Hafnarfjörður Directions

Fri Nov 27 2026 21:00

Föstudagskvöldið 27. nóvember ætlum við að bjóða ykkur upp á frábæra söngskemmtun og er söngþemað Sálin Hans Jóns Míns.

Sálarlögin þekkja allir, lög sem sum hver hafa hafa fylgt okkur í rúma þrjá áratugi og nánast hvert einasta mannsbarn þekkir og eru samofin þjóðarsálinni.

Við höfum kallað til tvo snillinga sem sjá um undirleik þá Þóri Úlfarsson píanóleikara sem m.a. starfaði töluvert með Sálinni hér áður fyrr og Pétur Valgarð Pétursson gítarleikara sem hefur nú í seinni tíð leikið með Stefáni Hilmarssyni.

Sérstakur heiðursgestur og gestaspilari þetta kvöld verður svo einmitt gítarleikari og helsti lagasmiður Sálarinnar, sjálfur Guðmundur Jónsson.

Við byrjum kl. 21.00 og það er frítt inn.

Syngdu með - Sálarlögunum.

Viðburðurinn er unnið í samvinnu við Menningarbæjinn Hafnarfjörð.