Teiknimyndaránið - Útgáfuhóf!

Teiknimyndaránið - Útgáfuhóf!

Penninn Eymundsson - Smáralind, Smáralind, 201 Kópavogur Directions

Sat Oct 31 2026 14:00

HÚMOR! SPENNA! SÚRSÍLD!

Teiknimyndaránið, glæný og galsafull gleðisprengja eftir Ævar Þór Benediktsson, er komin út og því verður fagnað í Pennanum Smáralind laugardaginn 31. október kl. 14:00!

Besti vinur Halla, hann Tóti, er að flytja til Svíþjóðar og vinirnir munu ekki einu sinni ná að horfa saman á framhaldið af uppáhaldsteiknimyndinni sinni, Bankaráninu. Ja, ekki nema Halli nái að fremja hið fullkomna rán ...

Ævar les upp úr bókinni og áritar. Léttar veitingar í boði, en engin súrsíld!

Sjáumst í Smáralind!