Það sem við sjáum þegar við lokum augunum - útgáfuboð

Það sem við sjáum þegar við lokum augunum - útgáfuboð

Bókabúðin Skálda, Vesturgata 10, 101 Reykjavík Directions

Thu Nov 19 2026 17:00

Verið velkomin að fagna með okkur útgáfu skáldsögunnar Það sem við sjáum þegar við lokum augunum eftir Örvar Smárason í Skáldu. Léttar veitingar og höfundur áritar fyrir áhugasöm.

Forfallinn safnari fær vídeóspólu með vandræðalegu efni í hendurnar. Sérvitur verðlaunahöfundur hefur haslað sér völl á samfélagsmiðlum undir dulnefninu Hjartakonan. Myndbandsgreinandi hjá Interpol er haldinn Tetris-fíkn og sendur í veikindaleyfi til Íslands. Dag einn fléttast líf þeirra saman á óvæntan hátt.

Leiftrandi snjöll skáldsaga um sköpunarverk, voðaverk, endurreisnarverk og allt það sem við sjáum þegar við lokum augunum.

Hlökkum til að sjá ykkur.