Þátttaka Jóns Sigurðssonar í mótun færeyskrar stafsetningar

Þátttaka Jóns Sigurðssonar í mótun færeyskrar stafsetningar

Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Directions

Tue 01.09.2026 17:00

Þriðjudaginn 1. september mun sagnfræðingurinn, rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Ole Wich flytja fyrirlesturinn »Þátttaka Jóns Sigurðssonar í mótun færeyskrar stafsetningar«.

Um miðja 19. öld vaknaði þörf fyrir samræmda færeyska stafsetningu, til dæmis til að gefa út safn færeyskra kvæða. Þessi stafsetning var mörkuð árið 1847 af hópi fræðimanna sem létu sér annt um rannsóknir á færeyskri menningu og eflingu hennar, þar á meðal Jóni Sigurðssyni.

Í sögulegri umfjöllun hefur færeyski fræðimaðurinn V.U. Hammershaimb hins vegar einn verið talinn höfundur færeysku stafsetningarinnar, þótt raunverulegar sögulegar heimildir sýni skýrt að til hafi verið tengslanet fræðimanna sem mótuðu stafsetninguna. Í fyrirlestrinum er gerð grein fyrir hugmyndafræðinni að baki, lykilpersónunum og þeim atburðum sem leiddu til þeirrar færeysku stafsetningar sem notuð er í dag, með sérstakri áherslu á hlutverk Jóns Sigurðssonar.

Fyrirlesturinn er á ensku.

Þriðjudaginn 1. september kl. 17:00

Amtsbókasafnið á Akureyri