Þín leið Áfram

Þín leið Áfram

Dass Reykjavík, Vegamótastígur 7, 101 Reykjavík Directions

Mon Sep 21 2026 17:00

Námskeið fyrir konur um stefnuna á starfsferlinum, hetjuferðina þína og lífsgildi.

21. september - 16. nóvember

• HEYRIRÐU HVAÐ KALLAR Á ÞIG?

• HVAÐ VILTU VERÐA (NÆST)?

• HVERNIG VILTU VAXA INN Í NÆSTA VIÐFANGSEFNI?

• HVAÐA HUGREKKI VILTU EFLA?

• HVAÐA ÁSKORUN VILTU SETJA ÞÉR?

• VILTU LEGGJA Í HETJUFERÐINA SEM KALLAR Á ÞIG?

HÉR ER TÆKIFÆRI FYRIR ÞIG TIL AÐ:

• Undirbúa leiðina áfram

• Svara markvisst þessum spurningum

• Fá meðbyr og hvatningu

----------------------------------------------------

Námskeiðið Þín leið áfram hefst í september og stendur fram í nóvember. Hist er í átta skipti alls.

Þetta eru markvissar vinnulotur með fjölbreyttum nálgunum. Unnið er með hugrekki, drauma, viljastyrk, gildismat, markmið og sjálfsþekkingu. Hver og ein finnur sín atriði til að vinna með út frá setningunum hér í byrjun.

Þetta námskeið er tækifæri sem mætti gefa sér reglulega. Til að efla þig, finna hvað þig langar og hlusta eftir kallinu innra með þér um hvað þú vilt gera fljótlega. Það er mjög árangursríkt að taka þátt í markvissri dagskrá með hópi sem hittist reglulega með þetta sameiginlega markmið.

Hér er tækifæri til að fá næði og tíma til að íhuga hvað þig langar, tala um það og pæla í því. Þannig taka draumar og langanir á sig skýrari mynd og þá vestu á hvað þú ætlar að stefna.

Þegar vissan er komin um hvað við viljum þá er hetjuferð framundan til að sinna kallinu. Sú ferð krefst hugrekkis og áræðni. Til að auka líkurnar á að við leggjum af stað í þá vegferð er fyrsta málið að vinna undirbúningsvinnu sem þetta námskeið býður uppá.

Á námskeiðinu eru markvissar vinnulotur með fjölbreyttum nálgunum. Þetta er hagnýtt námskeið og leidd sjálfsvinna til sjálfsþekkingar og sjálfsstyrkingar.

Nánar hér: https://thinleid.is/afram

Performers