Þórir Baldursson - Tónlistarheimur í meir en hálfa öld - Gammar & gestir
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Directions
Fri Oct 16 2026 20:30
Tónlistarheimur í meira en hálfa öld
Þórir Baldursson fagnar löngum og fjölbreyttum tónlistarferli með stórtónleikum í Austurbæjarbíói 16. október. Á tónleikunum leiðir Þórir saman ólíka þræði úr tónlistarheimi sínum, frá jazz-rokki og fusion Gamma til nýrra sönglaga sem orðið hafa til á ferlinum bæði hér heima og erlendis.
Með Þóri mun leika Hljómsveitin Gammar, en hana skipa auk Þóris: Stefán S. Stefánsson, Björn Thoroddsen, Bjarni Sveinbjörnsson og Sigfús Óttarsson. Til liðs við sig fá þeir Einar Scheving og Pálma Sigurhjartarson.
Um sönginn sjá: Una Stefánsdóttir, Kjalar Martinsson Kollmar, Stefanía Svavarsdóttir og Geir Ólafsson.
Bakraddir syngja: Íris Lind Verudóttir, Ragna Björg Ársælsdóttir og Arna Rún Ómarsdóttir.
Miðasala á tix.is
Sjáumst í Austurbæjarbíói!