Tilboð mánaðarins - Elskhuginn

Tilboð mánaðarins - Elskhuginn

Tjarnarbíó Theater, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Directions

Tue Oct 06 2026 20:00

TILBOÐ MÁNAÐARINS - Elskhuginn

Þriðjudaginn 6. október

Höfundur: Harold Pinter

Leikarar: Hákon Jóhannesson og Þórey Birgisdóttir

Tilboð októbermánaðar, þann 6. október, munu Þórey Birgisdóttir og Hákon Jóhannesson lesa með okkur Elskhugann eftir Harold Pinter, eitt af fyndnustu og skringilegustu verkum hans. Sarah og Richard virðast vera hið fullkomna millistéttarpar en þegar þau fara að ræða elskhuga hennar af furðulegu kæruleysi verður fljótt ljóst að reglurnar í þessu sambandi eru öðruvísi en hjá flestum. Nóbelskáldið Pinter leikur sér af sinni alkunnu snilld að löngunum, hlutverkum og þeim leikjum sem fólk finnur upp til að halda hversdeginum spæsí. Hvað þarf hjónaband að innihalda til að haldast spennandi? Sameiginlegt heimili, traust, opin samskipti... eða kannski vel útfærðan elskhuga? Þórey og Hákon eru ekki bara tvö af okkar bestu leikurum heldur líka eitt af heitustu pörum landsins, sem gerir þessa hættuför inn í hjónaband enn skemmtilegri.

Fyndið, sexý, skrýtið og smá skerí. Er hægt að biðja um meira?

Tilboð mánaðarins er leiklestraröð þar sem einn þriðjudag í mánuði eru fluttir æfðir leiklestrar af okkar skemmtilegasta bransafólki á heitu tilboðsverði - 2000 kr! Í hverjum mánuði bjóða listrænir stjórnendur, Anna María Tómasdóttir og Gígja Hilmarsdóttir, valinkunnu sviðslistafólki til að velja með sér leikrit til lestrar - nýtt verk, nýtt fólk, nýtt tilboð mánaðarins - alltaf brakandi ferskt. Leiklestrarnir eru í samvinnu við Leikminjasafnið, Sigríður Jónsdóttir sérfræðingur við safnið tekur þátt í umræðum eftir lesturinn og deilir sögulegum gögnum um verkin með áhorfendum. Tilboð sem þú getur ekki hafnað!