Tilboð mánaðarins
Tjarnarbíó Theater, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Directions
Tue Feb 02 2027 20:00
TILBOÐ MÁNAÐARINS - Grande
Þriðjudaginn 8. september
Höfundur: Tyrfingur Tyrfingsson
Leikari: Hjörtur Jóhann Jónsson
Þriðjudagskvöldið 8. september hefst á ný leiklestraröðin Tilboð mánaðarins í Tjarnarbíó. Við hefjum lesturinn í vetur á frumraun Tyrfings Tyrfingssonar, óþekktaranga hins íslenska leikhúss, le enfant terrible, einleikinn Grande, lesinn af okkar færasta Hirti Jóhanni Jónssyni sem lék hlutverkið líka í denn. Hér gefst sjaldgæft tækifæri til að heyra höfundinn glænýjan eftir mútur! Grande var útskriftarverk Tyrfings frá Listaháskóla Íslands árið 2011 og þá strax hljómaði þessi fyndna, óhrædda og elskandi höfundarödd á subbuskap og viðkvæmni manneskjunnar sem hefur gert Tyrfing að heitasta leikskáldi okkar tíma. Komið og heyrið Tyrfing áður en hann varð Tyrfingur.
Tilboð framundan:
Þriðjudaginn 6. október
Elskhuginn
Höfundur: Harold Pinter
Leikarar: Hákon Jóhannesson og Þórey Birgisdóttir
Tilboð októbermánaðar, þann 6. október, munu Þórey Birgisdóttir og Hákon Jóhannesson lesa með okkur Elskhugann eftir Harold Pinter, eitt af fyndnustu og skringilegustu verkum hans. Sarah og Richard virðast vera hið fullkomna millistéttarpar en þegar þau fara að ræða elskhuga hennar af furðulegu kæruleysi verður fljótt ljóst að reglurnar í þessu sambandi eru öðruvísi en hjá flestum. Nóbelskáldið Pinter leikur sér af sinni alkunnu snilld að löngunum, hlutverkum og þeim leikjum sem fólk finnur upp til að halda hversdeginum spæsí. Hvað þarf hjónaband að innihalda til að haldast spennandi? Sameiginlegt heimili, traust, opin samskipti... eða kannski vel útfærðan elskhuga? Þórey og Hákon eru ekki bara tvö af okkar bestu leikurum heldur líka eitt af heitustu pörum landsins, sem gerir þessa hættuför inn í hjónaband enn skemmtilegri.
Fyndið, sexý, skrýtið og smá skerí. Er hægt að biðja um meira?
Þriðjudaginn 19. janúar
Lokaæfing
Höfundur: Svava Jakobsdóttir
Leikarar: Aðalheiður Árnadóttir, Hannes Óli Ágústsson og Helga Salvör Jónsdóttur
Nýtt ár, ný fyrirheit og auðvitað lokaæfing. Þann 19. janúar ætlar ofurparið Aðalheiður Árnadóttir og Hannes Óli Ágústsson ásamt Helgu Salvöru Jónsdóttur að lesa Lokaæfingu eftir Svövu Jakobsdóttur. Galdurinn til að lifa af í kjarnorkubyrgi er að fylgja planinu út í æsar og hleypa engum inn. Verkið er heimsendasýn þar sem farið er á bólakaf í nojuna eða þrjá metra niðrí kjallara með 80 cm þykka loftplötu og rauðvínsdreytil, enda kjarnorkustyrjöld yfirvofandi. Verk Svövu Jakobsdóttur eru jafn skörp, fyndin og tímalaus í dag og þegar þau voru fyrst skrifuð og hafa skipað henni sess meðal áhrifamestu höfunda íslenskra bókmennta og leiklistar.Komdu ef þú þorir.
Þriðjudaginn 2. febrúar
Abigail heldur partý
Höfundur: Mike Leigh
Leikarar: Birgitta Birgisdóttir, Katla Njálsdóttir, Kristinn Óli Haraldsson, Sólbjört Sigurðardóttir og Vilhjálmur Bragason
Þrátt fyrir fáa daga getur febrúar verið ansi langur mánuður. Tilboð mánaðarins kippir því í liðinn, býður til veislu og tilvalið að eyða kvöldi með fólki sem er að fá taugaáfall yfir ostabakka og hvítvíni. Þann 2. febrúar förum við í eitt frægasta leikhúspartý sögunnar með Króla, Kötlu Njáls, Sólbjörtu, Villa Braga og síðast en ekki síst Birgittu Birgis og lesum Abigail heldur partý eftir Mike Leigh. Vínið flæðir, tónlistin er æði og allir reyna sitt besta til að virðast afslappaðir og kúl. Það gengur auðvitað misvel. Bráðfyndið og sársaukafullt verk um hjónabönd, nágranna og þá skelfilegu tilfinningu að hafa sagt algerlega ranga hlutinn við absalút vitlausa manneskju. Þið munuð örugglega þekkja einhvern í þessu verki, vonandi ekki sjálf ykkur en líklega.
Komið þyrst, farið vandræðaleg heim.
Þriðjudaginn 9. mars
Hægan, Elektra
Höfundur: Hrafnhildur Hagalín
Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir og Margrét Vilhjálmsdóttir
Haldið ykkur fast og hafið ykkur hæg því þriðjudagskvöldið 9. mars verður elegans með glans þegar þær Margrét Vilhjálmsdóttir og Arndís Hrönn Egilsdóttir, tvær af ómþýðustu konum Íslands, lesa Hægan, Elektra eftir hina ómótstæðilega elegant Hrafnhildi Hagalín. Komið með okkur í draumkennt ferðalag þar sem ekki er allt sem sýnist. Í Hægan, Elektra fléttar Hrafnhildur af sinni alkunnu snilld saman leikhúsharmleik, mæðgnaharmleik og grískum harmleik með þeim afleiðingum að fortíðin lætur sig alls ekki hverfa af sviðinu. Frú Hagalín er okkar smartasta leikskáld og hér tekst hún á við leikhúsið sjálft, þessari furðulegu listgrein þar sem fólk þykist vera annað fólk. Með sínu glögga auga fyrir mannlegum brestum skapar hún heim þar sem leikur og veruleiki renna saman með óþægilegum afleiðingum. Og þvílíkur lúxus að fá glæsikvinnurnar Möggu Vil og Arndísi Hrönn til að gæða textann lífi.
Hægan, þetta verður veisla fyrir augu og eyru!
Þriðjudaginn 6. apríl
Hedda Gabler
Höfundur: Henrik Ibsen
Leikarar: Edda Björgvinsdóttir, Hólmfríður Hafliðadóttir, Jökull Smári Jakobsson, Nikulás Hansen, Sigurður Ingvarsson og Vigdís Halla Birgisdóttir
Við klárum þetta með stæl í Tilboði mánaðarins með einni frægustu og eftirminnilegustu persónu leikhússögunnar, Heddu Gabler. Þann 6. apríl ætlar leikhúsgoðsögnin Edda Björgvins ásamt nýrri kynslóð leikara, Hólmfríði Hafliða, Jökli Smára, Nikulási Hansen, Sigurði Ingvars og Vigdísi Höllu að lesa verk Ibsen um hana Heddu sem hefur pirrað og heillað áhorfendur í meira en heila öld. Leikar hefjast á hveitibrauðsdögum hjá þeim Heddu og eiginmanninum Jörgen Tesman. Allt ætti að vera toppnæs: fallegt heimili, vænleg framtíð, traustur eiginmaður. En nei. Heddu leiðist, henni leiðist geigvænlega og við tekur atburðarás þar sem afbrýðisemi, svik, prettir og draugar fortíðar klúðra málunum.
Koddu og hlýddu á Heddu áður en hún drepst úr leiðindum.