Tímabilaskipt næring í framkvæmd | Ókeypis fyrirlestur á netinu
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Wed Oct 28 2026 20:00
ATH! Skráning er nauðsynleg. Að smella á „Mæti“ hér á Facebook er ekki skráning. Skráðu þig á nutreleat.is/fyrirlestur til að fá Zoom-hlekkinn sendan.
Æfingaálagið er breytilegt milli daga… en fylgir næringin með? 🤔
Á erfiðasta æfingadegi vikunnar getur kolvetnaþörfin verið rúmlega tvöfalt meiri en á hvíldardegi. Samt sjáum við oft íþróttafólk borða það sama eða fylgja sömu næringarviðmiðum dag eftir dag.
Í þessum ókeypis fyrirlestri förum við meðal annars yfir:
📈 Hvernig næringarþarfir breytast í takt við æfingaálagið
🗓️ Hvað tímabilaskipt næring er og hvernig hún er innleidd
🚩 Rauð flögg sem geta komið fram og gott er að þekkja þegar næringin fylgir ekki álaginu
📱 Hvernig þú setur þetta í framkvæmd á praktískan hátt. Í lokin kynnum við svo Nutreleat appið.
💻 Á Zoom, um 50-60 mínútur
📱 Eftir það: 30-45 mínútna kennsla á Nutreleat appið fyrir þau sem vilja vera lengur
🎟️ Ókeypis, en skráning er nauðsynleg til að fá Zoom-hlekkinn
👉 Skráning: nutreleat.is/fyrirlestur
Fyrirlesturinn er fyrir íþróttafólk, þjálfara og virka einstaklinga, 18 ára og eldri.
Fyrirlesari er Lilja Guðmundsdóttir, íþróttanæringarfræðingur M.Sc., sem sinnir næringarráðgjöf fyrir landsliðs- og afreksíþróttafólk hjá Afreksmiðstöð Íslands (Team Iceland) og er stofnandi Nutreleat.