Tíu myndir: Spjall um erlenda markaði og gervigreindarkapphlaupið
Smárabíó, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Directions
Mon Nov 09 2026 18:00
Skráning: https://www.islandsbanki.is/is/vidburdur/tiu-myndir-spjall-um-erlenda-markadi-og-gervigreindarkapphlaupid
Hvernig er staðan á erlendum mörkuðum og hvaðan koma peningarnir sem knýja gervigreindarkapphlaupið?
Á fundinum „Tíu myndir“ beinum við sjónum að erlendum mörkuðum og gervigreindarkapphlaupinu og fáum til okkar góðan gest frá Vanguard, einu stærsta eignastýringarfyrirtæki heims. Gríðarlegir fjármunir streyma nú í gervigreind, gagnaver og örgjörva. Hver borgar fyrir þetta allt saman? Af hverju eru svona mörg félög á leið á markað núna? Hvað þýðir það fyrir þig sem fjárfesti? Tíu myndum verður varpað upp sem draga fram kjarna málsins og varpa ljósi á stöðuna.
Umræðum stýra Birkir og Leifur úr Chess After Dark. Í settið mæta:
🗣️ Mark Fitzgerald, fjárfestingastjóri Vanguard í Evrópu. Mark ber ábyrgð á þróun fjárfestingavara fyrirtækisins með sérstaka áherslu á kauphallarsjóði (ETF). Það eru sjóðir sem fylgja ákveðinni vísitölu og ganga kaupum og sölum í kauphöll eins og hlutabréf. Áður en Mark gekk til liðs við Vanguard starfaði hann sem framkvæmdastjóri hjá BlackRock, þar sem hann var yfirmaður iShares Equity & Swap Portfolio Management teymisins í Evrópu og jafnframt evrópskur leiðtogi Beta Strategies Index Research Group. Hann fer yfir stöðuna á erlendum mörkuðum og hvað einkennir fjárfestingaumhverfið í dag. Hann ræðir líka hvaða kostir eru í boði í sjóðum og hvað gott er að hafa í huga þegar þú velur leið til að fjárfesta.
🗣️ Valþór Druzin Halldórsson, forstöðumaður gagnaþjónustu og gervigreindar hjá Íslandsbanka. Valþór rýnir í peningana á bak við gervigreindarkapphlaupið og fer yfir hverjir fjármagna það, hvernig og með hvaða áhættu. Hann skoðar líka hvaða áhrif þetta hefur á markaðina.
📍 Húsið opnar kl. 17.30 og fundurinn hefst kl. 18. Áætlað er að hann standi í rúman klukkutíma. Fundurinn er opinn öllum og fer fram í Flauelssalnum í Smárabíói mánudaginn 9. nóvember. Boðið verður upp á borgara frá Búllunni.
Sætafjöldi er takmarkaður, svo tryggðu þér sæti með því að skrá þig hérna: https://www.islandsbanki.is/is/vidburdur/tiu-myndir-spjall-um-erlenda-markadi-og-gervigreindarkapphlaupid