Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið
Hornafjörður Cultural Center, Litla brú 2, 780 Höfn Directions
Thu Oct 08 2026 19:30
Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Fimmtudaginn 8. október verða samtökin á Höfn í Hornafirði að funda með nemendum í 9. og 10. bekk.
Um kvöldið er boðið til opins samtals í Nýheimum þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þangað er forsjáraðilum sérstaklega boðið til að hlusta og eiga samtal um það sem brennur á börnum og ungmennum svæðisins.
Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.
Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti.