Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

Tölum saman um líðan og tengsl - Barnaheill og Geðhjálp á ferð um landið

Félagsheimilið á Hólmavík, Norðurtún 1, 510 Hólmavík Directions

Tue 08.09.2026 13:00

Barnaheill og Geðhjálp taka höndum saman og ferðast um landið í haust. Þar verður fundað með efstu bekkjum grunnskóla um líðan og veruleika ungmenna á hverjum stað. Lögð verður áhersla á samskipti, tengsl og líðan. Mánudaginn 7. september verða samtökin á Hólmavík að funda með efstubekkingum Reykhólahrepps, Strandabyggðar, Kaldrananeshrepps og Árneshrepps.

Eftir hádegið kl. 13:00, er boðið til opins samtals í Félagsheimilinu á Hólmavík þar sem nemendur og/eða hópstjórar kynna það helsta sem kom fram í hópavinnunni. Þangað er forsjáraðilum sérstaklega boðið til að hlusta og eiga samtal um það sem brennur á börnum og ungmennum svæðisins.

Þar verða einnig umræður í lokin með áherslu á jákvæð skilaboð sem hægt er að byggja á í áframhaldandi vinnu innan hvers samfélags og á hverju heimili. Í anda Geðlestarinnar endar dagskráin á stuttum tónleikum með Unnsteini Manuel.

Á þennan fund eru öll velkomin en þó er ekki æskilegt að börn yngri en 12 ára mæti.

Performers