Tónleikakynning: Storgård, Dariescu, Bruckner og Clara Schumann!
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Directions
Thu Nov 19 2026 18:00
Það er spennandi tónlistarkvöld fram undan fimmtudaginn 19. nóvember! Finnski hljómsveitarstjórinn og fiðluleikarinn John Storgårds stjórnar annarri sinfóníu Bruckners og Alexandra Dariescu leikur píanókonsert Clöru Schumann. Bæði verkin hljóma nú í fyrsta sinn hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Storgårds bregður sér líka í hlutverk einleikara í rómönsum Clöru.
Við í Vinafélaginu hefjum kvöldið með tónleikakynningu kl. 18:00, þar sem Egill Arnarson, heimspekingur og ritstjóri, leiðir okkur inn í efnisskrána. Kynningin fer fram í Hörpuhorni, fyrir framan Eldborg á 2. hæð Hörpu, þar sem hægt er að kaupa ljúffengar veitingar.
Kynningarnar eru skemmtileg leið til að kynnast tónlistinni betur, fá ný sjónarhorn og hitta aðra tónlistarunnendur áður en sest er í salinn.
Komið og njótið kvöldsins með okkur!