Tónleikar til styrktar Vonarbrú í Þórshafnarkirkju

Tónleikar til styrktar Vonarbrú í Þórshafnarkirkju

Þórshafnarkirkja, Sunnuvegur 2, 680 Þórshöfn Directions

Sat Sep 26 2026 14:30

Kristín S. Bjarnadóttir stofnandi Vonarbrúar ávarpar tónleikagesti í upphafi, flytur þakkir til Langanesbyggðar og segir örstutt frá almannaheillafélaginu Vonarbrú, sem fékk mannréttindaviðurkenningu Akureyrarbæjar í vor fyrir hjálparstarf til barnafjölskyldna á Gaza. 

Þær stöllur frá Akureyri, Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir orgel - og píanóleikari, munu svo leika glænýja og yndislega fallega tónlist, sem er að mestu eftir þær sjálfar. 

Yfirskrift tónleikanna: Örlög, gleði og yndishrúga.

Aðgangseyrir: Frjáls framlög í söfnunarbauk eða posa. 

Ávarp og tónleikar munu taka um 40-50 mínútur og á eftir verður boðið upp á kaffi í Safnaðarheimilinu þar sem jafnframt verður kynningar- og söluborð frá Vonarbrú, með kleinum, sælgæti og ýmsum kynningarvörum Vonarbrúar. Þar mun gefast ráðrúm fyrir samveru, samtal og fyrirspurnir í anda samkenndar og friðar. 

Tónleikarnir eru haldnir í tengslum við Friðardaga Vonarbrúar að Ytra Lóni á Langanesi. Sjá nánari upplýsingar á facebook síðunni Vonarbrú. 

Stjórn Vonarbrúar þakkar af alhug fyrir lánið á Þórshafnarkirkju og safnaðarheimilinu. 

Verið hjartanlega velkomin.