Transheilunarstund við Brunnárfoss - með Gaiu, jarðar- & ljósverum
Hof Menningarhús | Hamrar, Strandgata 12, 600 Akureyri Directions
Wed 26.08.2026 20:30
Við Hulda Ólafsdóttir, Hilda Hólm Árnadóttir og Harpa Dowan Howee bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í ókeypis transheilunarstund við Brunnárfoss í Kjarnaskógi, við Hamra, MIÐVIKUDAGINN 26. ágúst kl. 20:30.
Í kyrrð og krafti náttúrunnar munum við opna fyrir transheilun og bjóða englum, Gaiu, jarðarverum og öðrum yndislegum ljósverum að stíga inn í stundina.
Við ætlum að leyfa okkur að njóta þess að vera í nærveru þessara fallegu vera, finna orkuna þeirra og leyfa henni að flæða inn í heilunina.
Við komum saman til að þiggja heilun, en jafnframt til að sameina kraft okkar og senda heilun til jarðarinnar. Vatnið, fossinn og náttúran í kringum okkur verða þannig einnig hluti af stundinni og þeirri orku sem við sköpum saman.
Verið hjartanlega velkomin
Við verðum einnig í beinni. Beina útsendingin hefst 20:15
Hér er hlekkurinn á útsendinguna:
https://fb.me/e/77N2Zpc8D
Við hvetjum þau sem ætla að koma og njóta stundarinnar með okkur til að taka með sér teppi og rafmagnskerti til að skapa hlýlega og fallega stemningu við fossinn.
Við verðum úti undir berum himni, svo munið að klæða ykkur vel og eftir veðri.
Best er að leggja á bílastæði við Hamra en þaðan er svolítil ganga að fossinum.
Þægilegast er að fara frá Hömrum og styttri ganga. Leiðin verður merkt þannig að þetta ætti ekki að fara fram hjá fólki. Stígurinn sem nær svo alveg upp að fossinum er ekki alveg frábær og biðjumst við velvirðingar á því.
Um okkur Huldu, Hildu & Hörpu:
Hilda hefur um árabil lagt stund á andleg málefni og sótt fjölbreytt námskeið og þjálfun á því sviði. Hún hefur meðal annars farið nokkrum sinnum til Arthur Findlay College í Englandi, þar sem hún hefur sótt nám og þjálfun í miðlun, transmiðlun og heilun.
Hún hefur jafnframt lokið námi og þjálfun sem Quantum Healer og Quantum Energetic Practitioner, Akashic Records Practitioner, Multidimensional Energy Healer, Angelic Healing Practitioner og Merkaba Light Body Activator.
Hulda er Klínískur dáleiðandi og sérfræðingur í Hugrænni endurforritun, Fyrri lífa dáleiðari - QHHT-Dolores Cannon, Heilari, Markþjálfi, Reikimeistari, Grafískur hönnuður og eigandi Hjartalags ehf. Hulda hefur sótt ýmis andleg námskeið hérlendis og erlendis í The Arthur Findley College.
Harpa Dowan Howee er hljóðheilari og eigandi Líkama Sálar. Hún er fædd á Akureyri og hefur ræktað næmni sína frá barnsaldri, meðal annars gegnum störf sín hjá Sálarrannsóknafélagi Akureyrar. Harpa er vottaður Gong Master með CMA vottun og er með alþjóðavottun í hljóðheilun (ISTA). Hún er einnig með bakgrunn í söng og miðilshæfileikum og hefur lokið námskeiði í áfallajóga ásamt öðrum námskeiðum sem nýtast henni vel við hljóðlækningar.
Performers
-
Hulda Ólafsdóttir
Markmið mitt í lífinu er að læra og eflast sem manneskja, sem og gefa af mér til að bæta samfélagið.