TRAS - réttindanámskeið

TRAS - réttindanámskeið

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Thu Apr 08 2027 13:00

Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrá á einfaldan hátt yfirlit yfir málþroskaferli tveggja til fimm ára gamalla barna með því að fylla út skráningarlista.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrá á einfaldan hátt yfirlit yfir málþroskaferli tveggja til fimm ára gamalla barna með því að fylla út skráningarlista. Spurningar á skráningarlistanum eru byggðar á niðurstöðum rannsókna um þróun málþroska.

Góður málþroski skiptir miklu máli fyrir almennan þroska. TRAS- efnið var þróað og samið af sérfræðingum í sérkennslu og talmeinafræði í Noregi og er skráningaraðferðin almennt notuð í leikskólum á Norðurlöndunum.

Á námskeiðinu er rætt um mikilvægi þess að leikskólakennarar og annað fagfólk fylgist vel með þróun málþroska og þátttakendur læra að skrá málþroska ungra barna út frá ákveðnum færnisviðum. Einnig er fjallað um helstu frávik í málþroska og ræddar eru hugmyndir um viðeigandi íhlutun og ráðgjöf til foreldra og forráðamanna.

Námskeiðið er ætlað leikskólakennurum, grunnskólakennurum, þroskaþjálfum, talmeinafræðingum, sálfræðingum og sérkennurum.

Þetta er réttindanámskeið og aðeins þeir sem hafa sótt þetta námskeið hafa leyfi til að nota TRAS skráningarlistann. Námskeiðið er kennt í tveimur hlutum.

Gerð er krafa um að þátttakendur á námskeiðinu hafi mjög gott vald á íslenskri tungu.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Fræðin á bakvið TRAS-efnið.
  • Notkun TRAS-skráningalistans.
  • Tengsl málþroska, námsárangurs, hegðunar og líðan.
  • Skráningarblöð sem tilheyra TRAS og þátttakendur fá æfingu í notkun þeirra.
  • Hugmyndir um ráðgjöf og íhlutun.

Ávinningur þinn:

  • Öðlast betri þekkingu á málþroska út frá ákveðnum málþáttum.
  • Getur unnið markvissar eftir hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar m.a. með því að hafa yfirsýn yfir hvaða börn, á
  • mismunandi aldri, eru með frávik í málþroska.
  • Getur nýtt þér niðurstöður TRAS-skráningarlistans fyrir markvissa íhlutun í samvinnu við foreldra og aðra sérfræðinga ásamt því að meta árangur í málörvun og velja málörvunarefni við hæfi.
  • Getur gert þér betur grein fyrir hvenær æskilegt er að vísa börnum til talmeinafræðinga og annarra sérfræðinga.
  • Verið færari í að veita íhlutun og ráðgjöf út frá eðli málþroskafrávika.