TRE - Náttúruleg leið til að losna við verki og ná betri hvíld og meiri ró
Live Stream - GMT, , Reykjavík Directions
Wed 09.09.2026 17:30
Netnámskeið: TRE® (Tension, Stress & Trauma Release) er ný leið til að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans, sérstaklega í psoas vöðvum.
Þetta námskeið fer fram í gegnum zoom. Tímarnir eru teknir upp fyrir þátttakendur til að nýta sér á milli tíma.
Fjórir tímar/vikur á miðvikud. á Zoom.
Dags. 9., 16., 23., 30. sept. 2026
Tími: Hver tími er 90 mínútur frá kl. 17.30 - 19.00
Tímarnir eru teknir upp og hafa þátttakendur aðgöngu að upptökum 30 daga eftir að námskeiðinu líkur.
TRE - Með því að virkja náttúrleg viðbrögð líkamans, í öruggu og stýrðu umhverfi, er verið að hvetja líkamann til að ná aftur fyrra jafnvægi. Hver sem er getur lært að nota TRE. Æfingarnar eru einfaldar og hægt að aðlaga þær að líkama og hreyfigetu hvers og eins. TRE er sennilega ólíkt öllu sem þú hefur upplifað áður.
Leiðbeinandi: Svava Brooks, vottaður TRE leiðbeinandi síðan 2017.
Vers. 29.900 kr
Innifalið: Þátttakendur fá bækling á íslensku sem inniheldur æfingarnar og góðar leiðbeiningar um TRE. Bæklingurinn verður sendur til þín með póstinum.
Umsagnir um síðustu námskeið, skráning og nánari upplýsingar hér: https://www.svavabrooks.com/tre_a_netinu
Nánari upplýsingar og skráning: sendið tölvupóst á svava@svavabrooks.com
Helstu áhrif:
Dregur úr spennu og verkjum í baki, mjöðmum, og háls.
Minnkar áhyggjur og kvíða.
Dregur úr einkennum áfallastreituröskunar.
Eykur orku, þrek og bætir svefn.
Ef þú ert að takast á við stór áföll í lífinu, kulnun, eða "burnout" þá mæli ég með einkatíma áður en þú skráir þig á hópnámskeið.
Umsögn: "Sá þetta TRE námskeið auglýst fyrir tilviljun og það vakti athygli mína þar sem ég hafði stuttu áður velt því fyrir mér hvort ákveðnir verkir, til margra ára, spenna, streita og kvíði væru eitthvað sem ég hreinlega geymdi í líkamanum og gætu m.a. tengst áföllum. Ég mætti því forvitin á þetta námskeið, en ekki með neinar væntingar, ákvað samt að vera opin fyrir þess og gefa þessu tækifæri. Það virkaði vel á mig hvað leiðbeinandinn, hún Svava var einlæg, tilgerðarlaus og kom efninu skýrt og áreynslulaust frá sér. Þegar ég vaknaði morgunin eftir fyrsta dag námskeiðsins, tók ég strax eftir að ég var miklu afslappaðri en
venjulega og djúpstæð kyrrð og ró var innra með mér. Ég var líka með mun minni verki í líkamanum allan þennan dag. Ég mætti því full af áhuga í næsta tíma og heyrði þar fleiri segja frá svipaðri reynslu. Þessi frábæra tækni er verkfæri sem ég mun nýta mér í framtíðinni og er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast TRE." -Guðrún Vilhjálmsdóttir
Fleiri umsagir um TRE https://share.google/9rrEdtqFaNRTrvSkj
Til að bóka einkatíma eða 20 mín. frítt spjall til að leita ráða hvort þetta námskeiðið henti þér, bókaðu hér. https://www.svavabrooks.com/tre
Er reglulega með námskeið í Reykjavík https://www.svavabrooks.com/tre
Hefur þú áhuga á að verða TRE leiðbeinandi? https://www.svavabrooks.com/tre-iceland
Performers
-
Svava Brooks
Certified TRE Provider