Tvöfalt útgáfuhóf!

Tvöfalt útgáfuhóf!

Penninn Eymundsson, Smáralind, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Directions

Tue Nov 24 2026 17:00

Kristín Björg og Sigrún Alda fagna útgáfu tveggja bóka í Eymundsson, Smáralind og ÞÉR er boðið!🤩

Hvað fá jólasveinar í jólagjöf? eftir Kristínu Björgu kemur í verslanir í tæka tíð fyrir jólin og Amelía og Óliver fara í bústað, eftir Kristínu Björgu og Sigrúnu Öldu, kom út fyrr á árinu svo það er ærin ástæða til að fagna. Svo eiga bækurnar tvær það sameiginlegt að Herborg Árnadóttir myndlýsir þær báðar.

Höfundar lesa upp og árita bækur, léttar veitingar í boði og bækurnar á sérstöku 🌟útgáfutilboði🌟 Við lofum mikilli jólastemningu fyrir alla fjölskylduna!

Hvað fá jólasveinar í jólagjöf er bráðfyndin og spennandi jólabók um Agnesi og jólaálfinn Jólentínus sem þurfa að leita hátt og lágt af íslensku jólasveinunum til að gefa þeim jólagjafir frá Alþjóðlegu hátíðarstofnuninni. En jólasveinarnir eru ekki auðfundnir!🎅

Amelía og Óliver fara í bústað er hugljúf saga um vináttu og leikgleði sem er til þess fallin að auka orðaforða og lesskilning.

Verið öll hjartanlega velkomin!

Performers