Undraheimur Þingvalla

Undraheimur Þingvalla

Endurmenntun HÍ, Dunhagi 7, 107 Reykjavík Directions

Mon Apr 05 2027 20:00

Á þessu námskeiði deila sérfræðingar úr fimm fræðasviðum dýrmætri innsýn í náttúru, sögu og arfleifð Þingvalla.

Gerðu næstu ferð að Þingvöllum að einstæðri upplifun! Á þessu námskeiði deila sérfræðingar fimm fræðasviða dýrmætri innsýn í náttúru, sögu og arfleifð Þingvalla – helgasta svæði Íslendinga.

Þetta þriggja kvölda námskeið veitir þverfaglega sýn á Þingvelli í gegnum jarðfræði, líffræði, fornleifafræði, stjórnmálasögu og verndunarsjónarmið. Kennslan fer fram með fyrirlestrum frá sérfræðingum sem hafa rannsakað og unnið að verndun svæðisins.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja dýpka skilning sinn á Þingvöllum. Sérstaklega gagnlegt fyrir kennara, leiðsögumenn, starfsfólk menningarstofnana, náttúruverndar og þau sem starfa í ferðaþjónustu. Engar forkröfur.

Efni og ávinningur

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Helstu jarðmyndanir á Þingvallasvæðinu, jarðskorpufleka og gosbeltaflutninga.
  • Lífríki Þingvallavatns, vistkerfi þess og álag á vatnið.
  • Löggjöf og regluverk sem verndar Þingvallavatn og vatnasvið þess.
  • Sögu Alþingis, Lögbergs og hlutverk lögsögumanns.
  • Túlkun þjóðveldisins, lýðveldis og ríkisvalds í sögulegu samhengi.
  • Þingvelli sem tákn andófs og minninga, t.d. refsinga og þjóðhátíða.
  • Hugmyndir Jóns Sigurðssonar og Tómasar Sæmundssonar um Þingvelli í samtímanum.
  • Fornleifarannsóknir frá 19. öld og núverandi skráning í þjóðgarðinum.
  • Þjóðgarðsstjórn og helstu verkefni á svæðinu.
  • Þingvelli á Heimsminjaskrá UNESCO- þýðingu og áhrif.

Ávinningur þinn:

  • Þekking á jarðfræði og vistkerfi Þingvalla.
  • Innsýn í stjórnskipulegt og menningarlegt gildi svæðisins.
  • Betri skilningur á verndunarmálum og fornleifarannsóknum.
  • Dýpri tenging við sögu og sjálfsmynd þjóðarinnar.