UngDans Akureyri - A Man Walks Into a Bar

UngDans Akureyri - A Man Walks Into a Bar

Kaupvangsstræti 23, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri, Iceland, 600 Akureyri Directions

Thu 27.08.2026 20:00

UngDans Akureyri - A Man Walks Into a Bar

UngDans Akureyri frumsýnir fyrsta verk flokksins í Deiglunni.

Fimmtudaginn 27. ágúst kl. 20:00 verður fyrsta verk nýs dansflokks, UngDans Akureyri, frumsýnt í Deiglunni.

Undanfarinn mánuð hafa dansarar flokksins unnið náið með danshöfundinum og dansaranum Ólöfu Ósk Þorgeirsdóttur að þróun nýs dansverks. Í skapandi ferlinu hefur verið lögð áhersla á samvinnu, fjölbreyttar sköpunaraðferðir og að byggja á styrkleikum, tækni og reynslu dansaranna sjálfra. Þetta er leikandi og kraftmikið verk þar sem húmor, groove og ólíkir karakterar fá að njóta sín.

UngDans Akureyri er nýr dansflokkur á vegum Danssetursins sem hefur það að markmiði að gefa dansaranum raunverulega innsýn í vinnuferli atvinnudansara og skapa vettvang þar sem hægt er að þróast sem sviðslistafólk. Verkið markar upphaf UngDans Akureyri og er fyrsta skrefið í uppbyggingu nýs vettvangs fyrir ungt danslistafólk á Norðurlandi.

Dansarar:

Angela Íris Einarsdóttir

Anna Sunna Árnadóttir

Auður Gná Sigurðardóttir

Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir

Emelie Renzel

Kristjana Bella Kristinsdóttir

Telma Marý Arinbjarnardóttir

Verkefnið er styrkt af Menningarsjóði Akureyrarbæjar.

Hlökkum til að sjá ykkur!