Uppistand í Hofi

Uppistand í Hofi

Hamrar, Hof á Akureyri, Hamratún 24, 600 Akureyri Directions

Sat 29.08.2026 21:00

Uppistand í Hofi

Uppistandshópurinn Heimamenn stígur nú á svið í Hömrum í Hofi á Akureyrarvöku
Á þetta að vera fyndið?
Heimamenn í Hofi
 
Uppistandshópurinn Heimamenn snýr aftur í fjórða sinn og stígur nú á svið í Hömrum í Hofi á Akureyrarvöku.
Áhorfendur mega búast við fjölbreyttu kvöldi með fersku uppistandi, persónulegum pælingum, hversdagslegum uppákomum og sögum úr lífinu. Við hlæjum saman að samböndunum, börnunum, samfélaginu og öllu því sem verður aðeins bærilegra þegar maður fær að gera grín að því.
 
Á svið stíga:
🎤 Snæfríður Ingadóttir
🎤 Egill Bjarni Friðjónsson
🎤 Hannes Bjarni Hannesson
🎤 Svava Björk Ólafsdóttir
🎤Þórhallur Guðmundsson
🎤 Baddi Ingimarsson
 
Á síðasta uppistandi var troðfullt út úr dyrum og nú hlökkum við til að taka á móti enn fleirum í Hofi.
Húsið opnar kl. 20:00 og sýningin hefst kl. 21:00. Við mælum með að gestir mæti tímanlega. Viðburðurinn fer fram á íslensku. 
Komið og eigið skemmtilegt kvöld með okkur, styðjið heimafólk á sviðinu og njótið Akureyrarvöku.
 
Á þetta að vera fyndið?
Það kemur í ljós.
 
Viðburðurinn er hluti af Akureyrarvöku og styrktur af Akureyrarbæ.

Performers

  • Heimamenn
    Heimamenn

    plötusnúðum

  • Svava Björk Ólafsdóttir
    Svava Björk Ólafsdóttir

    Iceban - founder & director

    Angel investor

  • Akureyrarvaka
    Akureyrarvaka

    The Anniversary of Akureyri Municipality is celebrated annually on the weekend closest to the day of establishment which is the 29th of August. It´s a celebration including cultural events like exhibitions, visual art, music, science and so on.