Uppland Hafnarfjarðar: Kaldá og Gjárnar
Helgafell, , Hafnarfjörður Directions
Mon Sep 14 2026 17:00
Dags: 14. sept 2026, kl. 17:00
Lengd göngu: 4 km
Hækkun: lítil sem engin
Tími: 1.5 klst
Upphafsstaður: Bílastæði á bílastæði við Helgafell
https://maps.app.goo.gl/hcgracqXjxSzmVmD9
Leiðarlýsing: Gangan hefst á bílastæðinu við Helgafell og gengið að hinni dularfullu Kaldá og vatnsbóli Hafnfirðinga. Þaðan fylgjum við árfarvegi árinnar í vesturátt, framhjá sumarbúðum KFUM og K í Kaldárseli, þangað sem áin hverfur í hraunið. Því næst höldum við í náttúruvættið Gjárnar meðfram Kaldárhrauni en Kaldárhraun og Gjárnar, sem eru stórmerkilegar helluhraunsmyndanir og fagrar klettamyndanir í vestari hrauntröðinni frá hinni kunnu eldstöð Búrfelli, voru friðlýstar 2009 sem náttúruvætti í tilefni af 100 ára afmæli Hafnarfjarðarbæjar árið áður.
Gangan er liður í röð gönguferða í Reykjanesfólkvang sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands standa fyrir. Tilefnið er 50 ára afmæli fólkvangsins og að vekja athygli á tilgangi hans og þeim útivistarkostum sem fólkvangurinn geymir.