Útgáfuboð - Samræðusiðfræði
Neskirkja, Hagatorg, 107 Reykjavík Directions
Thu Sep 17 2026 16:00
Hið íslenska bókmenntafélag efnir til útgáfuboðs í tilefni af útkomu bókarinnar Samræðusiðfræði eftir Vilhjálm Árnason.
Samræðuhugtakið er brotið til mergjar og rýnt í hugmyndir um efnið frá sjónarhól siðfræði, tilvistarstefnu og samfélagsheimspeki. Sýnt er fram á mikilvægi samtals og rökræðu á ólíkum sviðum mannlífsins, svo sem í menntun, stjórnmálum og heilbrigðisþjónustu. Að mati höfundar hefur þróun undanfarna áratugi í stjórnmálum og menningu leitt til þess að brýnt sé að styrkja rökræðustoðir lýðræðissamfélagsins og gaumgæfa þýðingu samtalsins í mannlegum samskiptum.