Útgáfugleði Blúndu og blóma í Sigluvík
Blúndur og blóm, Sigluvík, 606 Svalbarðsstrandarhreppur Directions
Fri Nov 06 2026 19:30
Þann 6.-8. nóvember næstkomandi fögnum við 14. útgáfuári Blúndu og blóma með nýjum árgangi dagatala, korta o.fl. fyrir fagurkera og unnendur stemningarmynda og orðaperla.
Við bjóðum af þessu tilefni til einstakrar handverksveislu og hamingjustunda í Sigluvík á Svalbarðsströnd, 606 Akureyri.
Sýningaraðilar:
❄ Blúndur og blóm - Kristín S. Bjarnadóttir
❄ Draumablá - Agnes Ýr Sigurjónsdóttir
❄ Elísabet Jóhanna Zitterbart - Handverkskona
❄ Garðurinn minn - Heiðrún Sigurðardóttir
❄ Glólist - Gló Inga Lófalestur, englaorka og handverk
❄ KAOS - Íslensk hönnun og handverk - Kamilla Ósk Heimisdóttir
❄ KRÓ Design - Kjartan Reynir Ólafsson
❄ LINDA ÓLA art - Linda Björk Óladóttir
❄ Rósalína - Sólveig Guðmundsdóttir
❄ Selbuvettlingar fyrir frið - Kristín Sæm.
❄ Vonarbrú - notað skart, gamalt jólaskraut, ýmiskonar handverk, bækur og skrautmunir. Allt til styrktar barnafjölskyldum í neyð á Gasa.
❄ Sælkerahornið - Kjartan Valur Birgisson, fjáröflun
Opnunartímar Útgáfugleðinnar 🌲
❄Föstudagskvöldið 6. nóv. kl. 19:30-22:00.
❄Laugardagurinn 7. nóv. kl. 13-17.
❄Sunnudagurinn 8. nóv. kl. 13-17.
Í ár fer Útgáfugleðin fram bæði á efri hæð íbúðarhússins og í Vonarbrúar skemmunni norður af íbúðarhúsinu. Einnig verður Flóamarkaðurin í Sigluvík opinn á sama tíma (skemman við veginn).
Útgáfugleðin er margrómuð fyrir einstaka stemningu enda ekki á hverjum degi sem boðið er heim á slíka viðburði. Við sýningaraðilar munum taka á móti ykkur með sól í hjarta og hægt verður að gera góð kaup, hvort heldur sem er fyrir ykkur sjálf eða að finna eitthvað fallegt í jólapakkana. Úr nógu verður að velja og eitthvað verður hægt að fá sér líka gott í gogginn af sælkeraborði Kjartans Vals.
Ilmandi kaffi og piparkökur 🌿
Verið hjartanlega velkomin til okkar!
Kristín, Birgir og gestasýnendur
****************
Næg bílastæði, leggja má bílum á tún eins og þarf.
Aðgát við bæjarlæk sem rennur meðfram heimreið og undir hana áður en komið er heim á hlað.
Þrátt fyrir útiljós verður nokkuð dimmt úti fyrir á föstudagskvöldinu, munið ljósin í símunum ykkar.
Deilingar á viðburðinum eru þegnar með kærum þökkum ❤