Útgáfuhóf - Eyja og sólarsteinninn
Salka bókabúð, Hverfisgata 89, 101 Reykjavík Directions
Sat Nov 14 2026 14:00
Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókar Ragnheiðar Hörpu Leifsdóttur, Eyja og sólarsteinninn, í bókabúð Sölku við Hverfisgötu laugardaginn 14. nóvember kl. 14. Höfundur les úr bókinni og áritar og myndlistarkonan Íris María Leifsdóttir verður með vatnslitasmiðju fyrir börn með þemanu bátar og haf. Boðið verður upp á léttar veitingar og almenn huggulegheit. Bókin verður að sjálfsögðu á útgáfutilboði.
Um Eyju og sólarsteininn:
Eyja vaknar á hverjum morgni til að hlúa að ljósinu í vitanum.
Mamma hennar hefur verið í burtu lengur en nokkru sinni áður og í dag ætlar hún að segja frá því. Í ljós kemur að Eyja er ekki sú eina sem saknar foreldra sinna. Allt fullorðna fólkið á Hrafnsey er horfið. Fótspor við hrygginn benda til þess að einhver hafi stigið fæti þangað sem aldrei má fara.
Eyja og sólarsteinninn er ljóðræn og spennandi ævintýrasaga um vináttu, hugrekki og að rata í myrkri – jafnvel þegar ekkert ljós virðist vísa veginn.
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir las allar ævintýrabækur og þjóðsögur sem til voru á skólabókasafninu hennar. Síðan hafa sögur og bækur ofið sér leið inn í líf hennar og störf. Hún hefur gefið út fjölda bóka, sett upp leiksýningar og innsetningar og samið verk fyrir útvarp. Ragnheiður Harpa er ein Svikaskálda, en skáldsagan þeirra Olía, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2021. Hún hlaut verðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2026 fyrir ljóðabókina Deig. Eyja og sólarsteinninn er fyrsta barnabók hennar.