Útgáfuhóf - Heimir Hugrakki & lífið í leikskólanum
Bókasafn Árborgar, Selfossi, Austurvegur 2, 800 Selfoss Directions
Mon Nov 16 2026 16:30
Loksins 🎉
Nýjasta barnabókin mín, Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum, er komin út 🥳 Freydís Kristjánsdóttir myndskreytir bókina.
Í tilefni þess langar mig að bjóða í útgáfuhóf mánudaginn 16. nóvember. Þar mun ég lesa úr bókinni og hægt verður að kaupa hana á sérstöku útgáfuhófstilboði.
Heimir hugrakki & lífið í leikskólanum er fimmta barnabókin mín. En það eru 5 ár síðan síðasta bók kom út og gleðin því mikil núna.
Bókin fjallar um músina Heimi sem læðist inn í leikskólann Álfheima, hér á Selfossi. Þar er líf og fjör og nóg um að vera. Það verður uppi fótur og fit þegar uppgötvast að það sé komin mús inn í skólann. Hefst þá leitin að Heimi.
📍Bókasafninu á Selfossi.
📅 Mánudagurinn 16. nóvember.
🕓 Klukkan 16.30.
Öll hjartanlega velkomin 🤍