Útgáfuhóf - Jólahúsið hennar Sonju - Björg Jóna Birgisdóttir

Útgáfuhóf - Jólahúsið hennar Sonju - Björg Jóna Birgisdóttir

Dillonshús Café, Reykjavík City Museum, Kistuhylur, 110 Reykjavík Directions

Thu Nov 12 2026 17:00

Komdu og fagnaðu með okkur útgáfu bókarinnar Jólahúsið hennar Sonju eftir Björgu Jónu Birgisdóttur fimmtudaginn 12. nóvember kl. 17 í Árbæjarsafni í safnhúsi við Torgið.

Jólahúsið hennar Sonju er saga um sveitalíf lítillar stúlku, aðventu og jólahaldi fyrir miðja síðustu öld á sveitabæ í Reykjavík.

Fallegar myndir Freydísar Kristjánsdóttur, myndhöfundar, glæða söguna áhugaverðu og spennandi lífi.

Sagan byggir á æskuminningu móður höfundar, Sonju Backman.

Verið öll velkomin.

Gagnlegar upplýsingar:

♿Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld.

🦮Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

🚌 Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.