Útgáfupartí: Þúsund barna móðir eftir Maríu Elísabetu Bragadóttur
Hotel Holt, Bergstaðastræti 37, 101 Reykjavík Directions
Sat Nov 14 2026 17:00
Það er komið að því, María Elísabet Bragadóttir er að senda frá sér sína fyrstu skáldsögu, Þúsund barna móður! 🥂
Margir hafa beðið eftir henni með ofvæni, enda slógu fyrri bækur höfundar, Herbergi í öðrum heimi (2020) og Sápufuglinn (2022), eftirminnilega í gegn; og hafa komið út í þýðingum víða í Evrópu.
Við fögnum bókinni og höfundi hennar í betri stofunni á Hótel Holti, það er á barnum, laugardaginn 14. nóvember kl. 17. María Elísabet segir frá bókinni og les upp. Boðið verður upp á léttar veitingar og áritaðar bækur á tilboðsverði! Öll hjartanlega velkomin 🤗
Um bókina:
Ísafold gekk í björg sjö ára gömul og dvaldi þar í sólarhring. Hún býr yfir leyndardómsfullri sögu en er í dag þáttastjórnandi barnatímans og lifir hæglátu lífi. Þegar systir hennar, Dýrfinna, óttast að mamma þeirra sé komin með ósæmilega ungan kærasta, hriktir í stoðum fjölskyldunnar. Yfir systrunum vomar líka óhugnanleg ættarfylgja sem erfist í beinan kvenlegg og ná sögurnar af henni aldir aftur í tímann.
ÞÚSUND BARNA MÓÐIR er listilega fléttuð og frumleg fjölskyldusaga úr dularfullum samtíma, þar sem sumt fólk fæðist undir berum himni á meðan öðrum er áskapað líf í klettunum.