Útgáfutónleikar - Look up and live
ÆGIR 220 brugghús, Strandgata 90, 220 Hafnarfjörður Directions
Thu Nov 12 2026 20:00
Útgáfutónleikar 12. Nóvember
Flying Elbows - útgáfutónleikar
Flying Elbows halda útgáfutónleika á Ægi 220 í Hafnarfirði, þar sem frumsamið efni af nýútkominni EP plötu "look up and live" fær að njóta sín í alvöru aðstæðum í bland við eldri lög og valdar perlur.
Flying Elbows er hljómsveit sem varð til fyrir tilviljun en hún var sett saman fyrir einn viðburð fyrir nokkrum árum. Við uppgötvuðum svo hvað það er ótrúlega gefandi að skapa tónlist með fólki á svipaðri bylgjulengd.
Ef þú fílar lifandi tónlist sem er spiluð af fólki sem hefur virkilega gaman af þessu — þá ertu á réttum stað. Kíktu á nýju plötuna okkar á Spotify og kíktu svo á útgáfutónleikana okkar.
Um plötuna:
Nýja platan okkar fangar nákvæmlega það sem hljómsveitin stendur fyrir: fjölbreytt rokk.
kraftmikið og með grípandi riffi.
Um hljómsveitina:
Arnar Már Ólafsson - söngur og gítar
Hreiðar Júlíusson - trommur
Magnús Þór Ásgeirsson - gítar
Stefán Sigurðsson - bassi
Þetta verður kvöld fyrir þá sem vilja njóta góðrar tónlistar í þægilegu umhverfi.
Taktu kvöldið frá og vertu með okkur í Hafnarfirði og upplifðu kvöld fullt af nýju efni og frábærri stemningu.
Miðar hér: https://tix.is/event/22542/flying-elbows-utgafutonleikar