Vatnslitanámskeið 67 ára og eldri
Hafnarfjörður, , Hafnarfjörður Directions
Tue Sep 22 2026 11:00
Vatnslitanámskeið fyrir 67 ára og eldri 🎨
6 vikna skapandi námskeið í Hafnarfirði
📅 22. september – 27. október
Þriðjudagar
🕚 Kl. 11:00–14:00
📍 Hafnarfjörður
Langar þig að kynnast töfrum vatnslitanna og efla sköpunarkraftinn í notalegum félagsskap?
Á námskeiðinu fá þátttakendur góða kennslu í undirstöðuatriðum vatnslita. Áhersla er lögð á litafræði, mismunandi aðferðir og sérstöðu vatnslitanna.
Við skoðum vatnslitamyndir eftir íslenska og erlenda listamenn og unnið eftir ljósmyndum, fyrirmyndum og uppstillingum.
Við lærum mismunandi aðferðir til þess að fá mismunandi útkomu. Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem vilja þróa færni sína og öðlast meira öryggi í vatnslitamálun.
✨ Allt efni er innifalið í verði!
💰 Fullt verð: 95.400 kr.
🌿 Verð með afslætti fyrir eldri borgara, 67 ára og eldri: 65.900 kr.
ATH. Aðeins 8 laus pláss á hvert námskeið
👩🎨 Kennari: Halldóra
📞 Nánari upplýsingar og skráning: 694-4478
Rannsóknir sýna að þátttaka í skapandi listastarfi geti stuðlað að aukinni vellíðan, dregið úr streitu og haft jákvæð áhrif á andlega líðan.
Komdu og njóttu þess að skapa, læra og uppgötva gleðina sem felst í vatnslitum!