VEGURINN HEIM
Reykjavík, Iceland, Nauthólsvegur, 102 Reykjavík Directions
Mon Oct 12 2026 17:15
Vegurinn heim er 4 vikna ferðalag í átt að meiri ró, tengingu og mýkt við sjálfan þig og þinn líkama.
📍 Hvar
Bolholt 4 – 4. hæð
📅 Hvenær
12. október – 5. nóvember
Mánudaga og fimmtudaga
Kl. 17:15–18:30
Nema mánudagurinn 26 okt, færist yfir á þriðjudaginn 27 okt kl 17:15
Verð: 26.400 ,-
Stundum köllum við eftir breytingum.
En áður en breytingar geta orðið þurfum við fyrst að hægja á.
Við þurfum að gefa okkur tíma til að hlusta á líkamann, hjartað og þá rödd innra með okkur sem fær svo sjaldan rými í hraða dagsins.
Vegurinn heim er fjögurra vikna ferðalag þar sem við hittumst tvisvar í viku í hlýju og öruggu rými.
Ferðalagið er fyrir þig sem finnur að þú þarft að staldra við, losa um spennu og streitu, anda dýpra og skapa meira rými innra með þér.
Á hverri samveru fléttast saman:
🌿 Bandvefslosandi Yin yoga
🌿 Bandvefsnudd með Body Reroll boltum
🌿 Sjálfsmildi & sjálfsskoðun
🌿 Tónheilun sem fær að flæða út frá orku hópsins hverju sinni
Hér er rými til að gefa eftir.
Hér er rými til að taka á móti.
Hér er rými til að hlusta á líkamann.
Og treysta því að svörin sem við leitum að séu þegar til staðar innra með okkur.
Þetta ferðalag er fyrir þig sem:
🤍 Þráir meiri ró í daglegu lífi.
🤍 Vilt losa um spennu sem hefur safnast upp í líkama og huga.
🤍 Vilt mæta þér af meiri mýkt og án dóma.
🤍 Finnur löngun til að tengjast sjálfri/sjálfum þér á dýpri hátt.
Þú þarft enga fyrri reynslu.
Þú mátt koma nákvæmlega eins og þú ert.
Leiðbeinandi: Lovísa
Um mig:
Ferðalag Lovísu inn í heildræna heilun hófst af alvöru árið 2017 þegar hún fór að skoða sjálfa sig og líf sitt af meiri dýpt. Hún vann með eigin reynslu, áföll og þau mynstur sem höfðu mótað hana, og lærði að horfast í augu við meðvirkni og takmarkandi trúarkerfi sem hún hafði tileinkað sér. Í dag hlustar hún á innri röddina – ekki þá sem efast, heldur þá sem styður og leiðir.
Í gegnum árangursríka vinnu með fagfólki, andlega þjálfun og stöðuga sjálfsrækt hefur Lovísa lokið kennsluréttindum í jóga, lært markþjálfun, heilun og ýmis önnur kennaranámskeið. Hún nýtir þessa þekkingu í starfi sínu en einnig til að tengjast eigin kjarna og hefur upplifað að raunverulega er mögulegt að breytast, vaxa og blómstra. Þessi persónulega vegferð hefur veitt henni dýpri skilning og samkennd sem hún nýtir í vinnu sinni í dag.