Vetrarhljómur
Langholtskirkja, Sólheimar 13, 104 Reykjavík Directions
Sun Nov 15 2026 17:00
Lúðrasveitin Svanur blæs til vetrartónleika sunnudaginn 15. nóvember kl. 17.
Á tónleikunum munu hljóma bæði verk sem ríma við vetrarmyrkrið og þau sem minna okkur á að ljósið er skammt undan. Tónleikagestir munu án efa þekkja mörg stef sem munu hljóma en einnig uppgötva ný verk.
Á efnisskránni eru meðal annars nýtt verk eftir Amylee Trindade sem leikur á horn með sveitinni, Peer Gynt Suite I eftir Grieg, blómavalsinn úr Hnotubrjót Tchaikovskys, stef úr hinum vinsælu þáttum Downtown Abbey, Palladio eftir Jenkins, Intermezzo úr Cavalleria Rusticana auk þess sem slagverksleikarnir stíga á stökk með einleik á sandpappír í verki Leroy Anderson.
Miðverð: 3500, frítt fyrir börn. Miðasala við inngang.