Veturnætur 2026
Bókasafnið Ísafirði, Eyrargata, 400 Ísafjörður Directions
Wed Oct 21 2026 17:00
Lista- og menningarhátíðin Veturnætur fer fram 21.-25. október.
Þema Veturnátta 2026 er HAFÍS.
Gestir eru hvattir til að njóta og taka þátt í þeirri stemningu með okkur. Bláir litir, ljós og skreytingar sem sækja innblástur í hafísinn sem heimsótti Vestfirði í sumar prýða bæinn og skapa einstakt andrúmsloft á Veturnóttum.
Íbúar og gestir í Ísafjarðarbæ eru hvattir til að fylgjast með viðburði Veturnótta á Facebook.
Miðvikudagur 21. október
- 15:00 „Ísjakar eru allskonar“ Sýning leikskólabarna á Sólborg.
Á grindverkinu í kringum leikskólann má sjá fjölbreytt og litríkt listaverk eftir börnin á Sólborg. Sýningin verður til sýnis í um tvær vikur. - 17:00 Hausttiltekt með KonMari aðferðinni
Viltu einfalda lífið, taka til og skipuleggja heimilið fyrir veturinn?
Lísa Z. Valdimarsdóttir, alþjóðlegur KonMari ráðgjafi, segir frá aðferðinni sem nefnd er eftir japanska tiltektargúrúnum Marie Kondo.
Farið verður yfir grunnhugmyndina og fjallað um aðferðir við tiltekt og skipulag með jákvæðni og sjálfbærni í huga.
Þau sem koma eru hvött til að taka með fatnað og læra fatabrot aðferðarinnar.
Frítt inn og öll velkomin.
Viðburður á Bókasafninu Ísafirði.
Fimmtudagur 22. október
- 15:00-18:00 Fjölskyldustund
Notaleg samvera í aðdraganda vetrar. Heitt súkkulaði og vaffla á tilboði. Skreytum hvíta bolla með fallegum litum.
Á Bryggjukaffi - 17:00-19:00 Fá jöklar heimþrá?
Opnun einkasýningar Írisar Aspar Heiðrúnardóttur.
í Netagerðin vinnustofur. - 17:00 Lúðrasveit TÍ leikur fjörug lög í Neista.
- 18:00-20:00 Róleg lesstund / Silent Reading
Engar tölvur og róleg tónlist á fóninum. Prentaðar bækur æskilegar en rafbækur velkomnar. Njótið!
Á Heimabyggð. - 19:00-21:00 Klæðakot með lengri opnun og góð tilboð.
- 20:00-21:30 FramtÝð Íslands: Grínsýning Jóels Sæmundssonar.
Í Edinborgarhúsinu.
Miðaverð 6.490 kr. - 20.00 Draugar Dýrafjarðar - Hátíðarsýning
Draugar Dýrafjarðar er krassandi leikstykki byggt á mögnuðum og dagsönnum draugasögum. Víða verður skyggnst inní handanheima og við sögu koma einhverjir mögnuðustu draugar fjarðarins með Gunnhildi fremsta í flokki er gekk aftur lengst allra drauga Dýrafjarðar eða nærri eina öld
Kómedíuleikhúsið Haukadal
Miðaverð: 4.900 kr. - 20:00 „Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971-1974“.
Guðni Th. Jóhannesson, Jóns Sigurðssonar prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, var að senda frá sér bókina „Vald hinna veiku. Saga landhelgismálsins, 1971-1974“. Í tilefni þess heimsækir hann Byggðasafn Vestfjarða í Neðstakaupstað og kynnir bókina.
Viðburðurinn fer fram í Turnhúsinu
Föstudagur 23. október
- 16:00-20:00 Opið hús hjá Slökkvilið Ísafjarðarbæjar
Slökkviliðið opnar dyr sínar fyrir gestum. Slökkvibílar og búnaður verða til sýnis og gestum gefst tækifæri til að prófa að slökkva eld með slökkvitækjum undir leiðsögn slökkviliðsfólks. - 16:30 Tarot-lestur
Þegar rökkrið færist yfir Ísafjörð vakna spilin… Dragðu eitt og sjáðu hvaða leyndarmál það geymir fyrir þig.
Spákonan Edda og dularfullur aðstoðarmaður hennar eru enn í starfsþjálfun og ábyrgjast hvorki framtíð, fortíð né annað ófyrirséð.
Takmarkað pláss - skráning nauðsynleg. Skráning fer fram á bokasafn@isafjordur.is og í skilaboðum á Facebook-síðu Bókasafnsins.
Viðburður á Bókasafninu Ísafirði. - 20:00 Kvöldprjónastund á Bryggjukaffi
Á Bryggjukaffi
- 20:00-22:00 Guðrið Hansdóttir – Útgáfutónleikar Sýrublað
Færeyska tónlistarkona í hringferð um landið.
Miðaverð: 5.990 kr.
Laugardagur 24. október
- 11:00-13:00 Búningaskiptimarkaður
Á markaðnum verður hægt að skiptast á búningum fyrir hrekkjavökuna. Ekki er þörf á að koma með búninga til þess að fá búning á markaðnum.
Í Edinborgarhúsinu. - 12:00-14:30 Skissu- og vatnslitanámskeið með Gunnari Jónssyni
Námskeiðið er ókeypis og opið öllum 12 ára og eldri, óháð reynslu og getustigi, en þátttakendur þurfa að geta unnið sjálfstætt. Allt efni er innifalið
Í Edinborgarhúsinu - 13:00-18:00 Opið hús í Netagerðinni vinnustofur
Eins og síðustu ár ætlar Netagerðin vinnustofur að bjóða ykkur í heimsókn í tilefni Veturnátta. Húsið mun að sjálfsögðu iða af menningu og lífi. Kaffi og vöfflu ilminn leggur yfir allt og engin fara tómhent eða með tóman maga út því við bjóðum upp á opnar vinnustofur, hringrásar og plötu markað, pop up kaffihús og síðast en ekki síst listasýningin Fá jöklar heimþrá þar sem Íris okkar allra sýnir vatnslistaverk úr ísjökum sem sóttu okkur heim fyrir nokkrum vikum. Semsagt fullt hús af lífi og fjöri! - 14:00-16:00 Opið hús í Tónlistarskóla Ísafjarðar
- 14:00 Á MEÐAN einkasýning Veigar Ölnir Gunnarsson
Listasafn Ísafjarðar býður gesti hjartanlega velkomna á opnun einkasýningar Veigars Ölnis Gunnarssonar: Á meðan. Opnunin fer fram 24. október kl. 14:00 í sýningarsal Listasafns Ísafjarðar á annarri hæð í Safnahúsinu Ísafirði. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Sunnudagur 25. október
- 11:00-13:00 LEIRÓ-leikvöllur með leir
Komdu og eigðu notalega skapandi stund með leir í góðum félagsskap. Hvort sem þú hefur áður unnið með leir eða ert að prófa í fyrsta sinn er viðburðurinn fyrir þig. Efni , veitingar og leiðsögn verða á staðnum og þátttakendur fá tækifæri til að skapa sitt eigið verk í rólegu og hlýlegu umhverfi.
Skráning á Leirhildur í bio eða skilaboðum
Verð: 12:900 (allt efni innifalið)
Í Netagerðinni vinnustofur - 12:00-14:30 Skissu- og vatnslitanámskeið með Gunnari Jónssyni
Námskeiðið er ókeypis og opið öllum 12 ára og eldri, óháð reynslu og getustigi, en þátttakendur þurfa að geta unnið sjálfstætt. Allt efni er innifalið
Í Edinborgarhúsinu - 18:00-20:00 "Sip and Paint" -málunarkvöld
Komdu og njóttu skapandi kvöldstundar með vatnsmálun. Hanna Lára Jóhannsdóttir leiðir þátttakendur í gegnum gerð vetrarlandslags og veitir leiðsögn eftir þörfum. Viðburðurinn hentar öllum, óháð reynslu.
Verð: 3.500 kr. (allt efni innifalið)
Á Heimabyggð